[Vid-stund] Á MORGUN: Hverju skilaði Inspired by Iceland markaðsátakið? Friðrik Eysteinsson á Háskólatorgi HT-101, þriðjudaginn 8. nóv. kl. 12-13
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Mon Nov 7 15:22:42 GMT 2011
Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar: Hverju skilaði Inspired by Iceland
markaðsátakið?
Háskólatorg HT-101, þriðjudaginn 8. nóv. kl. 12-13
Í kjölfar eldgosins í Eyjafjallajökli ákvað ríkisstjórnin að verja 350
milljónum króna til að efna til markaðsátaks í ferðaþjónustu á árinu 2010
gegn því að fyrirtæki í ferðaþjónustu og aðrir hagsmunaaðilar legðu fram
jafn mikið fé á móti. Úr varð Inspired by Iceland markaðsátakið.
Og hvað fengu skattborgararnir fyrir sinn snúð? Ef marka má fréttir þá
skilaði Inspired by Iceland markaðsátakið 34 milljarða tekjum í fyrra. En
hefur verið sýnt fram á að tengsl séu á milli markaðsátaksins og tekna af
ferðamönnum, þ.e. að rekja megi árangurinn til þess? Réttlæta þau að
settar séu 900 milljónir króna á næstu þremur árum af fé skattborgaranna í
nýtt átak ?Ísland-Allt árið? eins og ríkisstjórnin hefur ákveðið að gera?
Friðrik Eysteinsson er aðjunkt í markaðsfræði við Viðskiptafræðideild
Háskóla Íslands.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111107/8fa7c7ec/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 153707 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111107/8fa7c7ec/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list