[Vid-stund] Málstofa í Hagfræðideild: Ávöxtun íslenskra hlutabréfa um mánaðamót í aðdraganda og kjölfar hruns, fimmtudaginn 3. nóvember kl. 11:00
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Wed Nov 2 11:34:07 GMT 2011
Ávöxtun íslenskra hlutabréfa um mánaðamót í aðdraganda og kjölfar hruns
Í fyrri rannsókn höfundar var sýnt fram á að ávöxtun hlutabréfa, sem skráð
eru í Kauphöll Íslands, hafði nokkur sérkenni um mánaðamót,
ársfjórðungamót
og áramót. Hlutabréf hækkuðu að jafnaði umtalsvert í verði síðasta
viðskiptadag mánaðar en lækkuðu svo aftur fyrsta viðskiptadag mánaðar á
árunum frá 2000 til 2006. Þessi rannsókn er framhaldsrannsókn, þar sem
skoðað er hvort sömu einkenni komu einnig fram í aðdraganda hruns
fjármálamarkaðarins árin 2007 og 2008 eða á endurreistum fjármálamarkaði
eftir hrun. Í ljós kemur að svo virðist vera. Þá er viðfangsefnið einnig
skoðað í ljósi viðamikilla gagna, sem birst hafa eftir hrun um fjármögnun
hlutabréfakaupa á íslenska markaðnum og kerfisbundin kaup
fjármálafyrirtækja
á eigin bréfum og hlutabréfum tengdra fyrirtækja.
Málstofan fer fram í Odda, fundarherbergi 3. hæð
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111102/db0a7299/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 159157 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111102/db0a7299/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list