[Vid-stund] ÍDAG: Málstofa í Viðskiptafræðideild: Viðhorf íslenskra neytenda til auglýsinga. Auður Hermannsdóttir á Háskólatorgi, HT-101, þriðjudaginn 17. maí kl. 12-13

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Tue May 17 09:22:13 GMT 2011


Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar: Viðhorf íslenskra neytenda til 
auglýsinga 

Viðhorf fólks til auglýsinga almennt getur gefið verðmætar upplýsingar um 
hversu áhrifaríkar einstaka auglýsingar geta verið. Á málstofunni verður 
greint frá niðurstöðum rannsóknar á viðhorfi íslenskra neytenda til 
auglýsinga. Þar var m.a. kannað hvort íslenskir neytendur telji 
auglýsingar hafa áhrif á gildi fólks, hvort þær sýni almennt réttu myndina 
af því sem verið er að auglýsa, hvort þær veiti gagnlegar upplýsingar og 
hvert skemmtanagildi þeirra sé. Jafnframt var kannað hvaða þættir skýra 
það hvort almennt viðhorf neytenda til auglýsinga sé jákvætt eða neikvætt. 
Niðurstöðurnar geta gefið auglýsendum gagnlegar upplýsingar um hvaða þætti 
æskilegt er að leggja áherslu á til að auka líkur á að auglýsingar skili 
tilætluðum árangri. 

Auður Hermannsdóttir er aðjúnkt við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands 
 
Staður og stund: 
Háskólatorg 
HT-101. 
Þriðjudaginn 17. maí kl. 12-13
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110517/4081de0d/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 142917 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110517/4081de0d/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list