[Vid-stund] Í DAG: Opin málstofa í Hagfræðideild: Er AGS vinur eða vá? Huginn Þorsteinsson aðstoðarmaður fjármálaráðherra á Háskólatorgi, HT-101, fimmtudaginn 12. maí kl.16:00

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Thu May 12 09:29:20 GMT 2011


Málstofa í Hagfræðideild: Er AGS vinur eða vá? 
 
Meginmarkmið Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hefur lengi verið að tryggja 
fjármálastöðugleika og aðstoða ríki er verða fyrir miklum efnahagslegum 
áföllum. Þrátt fyrir þessi göfugu markmið hefur sjóðurinn sætt harðri 
gagnrýni fyrir aðkomu sína að uppbyggingu á efnahagskerfi ríkja. Í 
erindinu verða rekin þau fjölmörgu atriði sem sjóðurinn hefur verið 
gagnrýndur fyrir. Sérstaklega er rakin gagnrýni félagshyggjufólks um 
hvernig ofuráhersla sjóðsins á markaðslausnir hafi haft slæmar afleiðingar 
fyrir ýmis ríki sem sjóðurinn hefur verið í samstarfi við. 
Í framhaldinu verður rætt um hvort þessi gagnrýni á fyrri áætlanir 
sjóðsins eigi við í tilfelli núverandi samstarfsáætlunar Íslands og AGS. 

Huginn Þorsteinsson er aðstoðarmaður fjármálaráðherra 

Staður og stund: 
Háskólatorg, HT-101 
kl. 16.00, fimmtudaginn 12. maí 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110512/b4031216/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 127169 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110512/b4031216/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list