[Vid-stund] Málstofa í Viðskiptafræðideild: Verkefnastjóri morgundagsins. Eðvald Möller á Háskólatorgi, HT-101, þriðjudaginn 10. maí kl. 12-13
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Thu May 5 15:02:15 GMT 2011
Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar: Verkefnastjóri morgundagsins
Markmið höfundar er að gera grein fyrir niðurstöðu á rannsókn sinni meðal
fyrirtækja um hvað þau vilja sjá í verkefnastjóra morgundagsins og hvaða
kröfur þau gera til hans. Oft getur orðið lítið úr stórum verkefnum ef
ekki er hæfur einstaklingur sem stýrir þeim. Það sem hér er sérstaklega
rannsakað er hvaða eiginleika einstaklingar þurfa að hafa til að geta
orðið hæfir verkefnastjórar. Í framhaldi er skoðuð þjálfun einstaklinga
þannig að þeir séu betur í stakk búnir til að taka að sér
verkefnastjórnun. Velt er upp hvaða þjálfun skilar bestum árangri og hvaða
kröfur íslensk fyrirtæki gera til verkefnastjóra.
Eðvald Möller er aðjúnkt við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
Staður og stund:
Háskólatorg
HT-101.
Þriðjudaginn
10. maí kl. 12-13
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110505/45651b97/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 125084 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110505/45651b97/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list