[Vid-stund] Í DAG: Málstofa í Viðskiptafræðideild: Kortlagning skapandi greina. Margrét Sigrún Sigurðardóttir í Odda, O-101, þriðjudaginn 3. maí kl. 12-13

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Tue May 3 10:35:22 GMT 2011


Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar: Kortlagning skapandi greina

Skýrsla um  kortlagningu hagrænna áhrifa skapandi greina verður kynnt. 
Þegar fjallað er um nýjar atvinnugreinar skipta skilgreiningar miklu máli. 
Skilgreining skapandi atvinnugreina hefur áhrif á það hvað fellur í þeirra 
flokk og mismunandi nálgun getur því haft áhrif á niðurstöðurnar. Helstu 
niðurstöður eru að skapandi greinar hér á landi veltu 189 milljörðum árið 
2009. Velta skapandi greina hefur haldist nokkuð stöðug þrátt fyrir 
efnahagslega lægð í öðrum atvinnugreinum og ársverkum hefur fjölgað. 
Skapandi greinar hafa ótvírætt hagrænt gildi, en einnig er vert að minna á 
að þær hafa jafnframt menningarlegt gildi, auka áhuga á ferðamennsku og 
bæta lífsgæði landsmanna.

Margrét Sigrún Sigurðardóttir er lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla 
Íslands

Staður og stund:
Oddi: O-101.
Þriðjudaginn 3. maí  kl. 12-13
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110503/9392f447/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 134048 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110503/9392f447/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list