[Vid-stund] Í DAG Kl 12-13 Eru skýrslur erlendra sendimanna traust heimild um íslensk stjórnmál? Opinn hádegisfundur í Öskju Náttúrufræðahúsi HÍ(við hlið Norræna hússins)
Ásta Möller
astam at hi.is
Thu Jan 13 08:57:24 GMT 2011
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
boðar til opins hádegisfundar 13. janúar 2011 í Öskju stofu 132
Eru skýrslur erlendra sendimanna traust heimild um íslensk stjórnmál?
Á síðustu vikum hafa skýrslur erlendra sendimanna um íslensk stjórnmál
verið til umfjöllunar í samfélaginu í kjölfar birtingar Wikileaks á
leyniskjölum er varða Ísland og íslensk stjórnmál. Fræðimenn hafa gegnum
tíðina unnið með slík gögn sem eiga uppruna sinn bæði vestan hafs og
austan. Stjórnmálaskýrendur hafa jafnframt fjallað um þessi mál í ræðu og
riti. Sýnist sitt hverjum um áreiðanleika slíkra gagna. Á fundinum verður
rætt um hvort skýrslur erlendra sendimanna séu traust heimild um íslensk
stjórnmál. Frummælendur eru Kristinn Hrafnsson, blaðamaður og talsmaður
Wikileaks, Jón Ólafsson, prófessor við Háskólann í Bifröst sem hefur
kannað sovésk gögn í rannsóknum sínum og Styrmir Gunnarsson, fv. ritstjóri
Morgunblaðsins sem átti samtöl við erlenda sendimenn um íslensk stjórnmál
í starfi sínu sem ritstjóri. Ólafur Þ. Harðarson prófessor og forseti
Félagsvísindasviðs HÍ stjórnar umræðum.
Með bestu kveðju,
Ásta Möller MPA,
forstöðumaður/director
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála / Institute of Public Management
and Politics.
Háskóli Íslands/University of Iceland
Gimli við Sæmundargötu, 101 Reykjavík
astam at hi.is
Símar/tel +354- 525-5454/ +354-8639307
Heimasíða: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is
Veftímarit:http://www.stjornmalogstjornsysla.is/
_______________________________________________
Þessi póstur var sendur á póstlistann Hi-starf at listar.hi.is.
Efni hans og innihald eru á ábyrgð sendanda og endurspegla
ekki endilega stefnu Háskóla Íslands í einstökum málum.
Sjá http://listar.hi.is/mailman/listinfo/hi-starf og
news:hi.listar.hi-starf.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110113/24318181/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 50835 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110113/24318181/attachment-0001.gif
More information about the Vid-stund
mailing list