[Vid-stund] nemendur ykkar sem taka prófin í aðstöðu Námsráðgjafar - sérrúrræðanemendur

Kristín Klara Einarsdóttir kke at hi.is
Wed Jan 5 15:37:14 GMT 2011


Sæl.

Ég vil vekja vekja athygli ykkar á því að í mörgum prófum eru nokkrir 
nemendur sem taka prófin í aðstöðu hjá námsráðgjöfum skólans.
Komið hafa upp tilvik þar sem kennarar hafa ekki litið til þessara nemenda 
þegar þeir ganga í stofur og er þetta sérstaklega bagalegt ef eitthvað 
þarf að leiðrétta eða koma á framfæri við nemendur í prófsal. 

Ég spurði prófstjóra hvernig kennarar gætu vitað hvort einhverjir nemendur 
þeirra taki prófin í aðstöðu hjá Námsráðgjöf og fékk meðf. svar:




Í síðustu þremur prófatörnum að minnsta kosti (haust 2009, vor 2010 og 
haust 2010) hafa upplýsingar um staðsetningu sérúrræðanema verið 
aðgengilegar kennurum á sérstakri heimasíðu á Netinu á eftirfarandi slóð:

http://www3.hi.is/~msteph/sernemar.htm

Fyrir upphaf hverrar tarnar hefur Hreinn prófstjóri sent öllum kennurum 
Háskólans tölvupóst þar sem farið er yfir helstu atriði í tengslum við 
prófin. Þar hefur upplýsingar um þetta fyrirkomulag og slóðina á síðuna 
verið að finna. Hins vegar hefur komið í ljós að misbrestur er á því að 
kennarar lesi póstinn. :-)






Kristín Klara Einarsdóttir
deildarstjóri
Viðskipta- og hagfræðideildar
Háskóla Íslands
Sími 525-4501
















-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110105/591da0a2/attachment.html 


More information about the Vid-stund mailing list