[Vid-stund] Málstofa í Viðskiptafræðideild: Skilvirkni framkvæmda

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Fri Dec 9 11:22:21 GMT 2011


Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar Skilvirkni framkvæmda
Háskólatorg, HT-101, þriðjudaginn 13. des. kl. 12-13

Á málstofunni verður kynnt rannsóknarverkefni þar sem markmiðið er að 
rannsaka skilvirkni framkvæmda og hvað geti leitt til aukinnar skilvirkni. 
Gerð verður grein fyrir skýrslu Ríkisendurskoðunar þar sem kemur fram að 
mikilvægt sé að tryggja fullnægjandi eftirlit með verk- og fjárhagsstöðu 
meðan á framkvæmdum stendur.

Í fjölmiðlum er oft rætt um verk sem fara fram úr áætlun en minna um hin 
sem standast áætlanir. Er eitthvað munstur sem skilur á milli áætlana sem 
ganga vel og hinna sem ganga illa? 

Eðvald Möller er aðjúnkt við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands

Allir velkomnir
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111209/0e4ba4e9/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 152491 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111209/0e4ba4e9/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list