[Vid-stund] Málstofa í Viðskiptafræðideild: Kortlagning skapandi greina. Margrét Sigrún Sigurðardóttir í Odda, O-101, þriðjudaginn 3. maí kl. 12-13
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Wed Apr 27 15:57:26 GMT 2011
Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar: Kortlagning skapandi greina
Þegar fjallað er um nýjar atvinnugreinar skipta skilgreiningar miklu máli.
Skilgreining skapandi atvinnugreina hefur áhrif á það hvað fellur í þeirra
flokk og mismunandi nálgun getur því haft áhrif á niðurstöðurnar. Helstu
niðurstöður eru að skapandi greinar hér á landi veltu 189 milljörðum árið
2009. Velta skapandi greina hefur haldist nokkuð stöðug þrátt fyrir
efnahagslega lægð í öðrum atvinnugreinum og ársverkum hefur fjölgað.
Skapandi greinar hafa ótvírætt hagrænt gildi, en einnig er vert að minna á
að þær hafa jafnframt menningarlegt gildi, auka áhuga á ferðamennsku og
bæta lífsgæði landsmanna.
Margrét Sigrún Sigurðardóttir er lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla
Íslands
Staður og stund:
Oddi: O-101
Þriðjudaginn 3. maí kl. 12-13
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110427/00c6def6/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 130120 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110427/00c6def6/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list