[Vid-stund] Málstofa í Viðskiptafræðideild: Er Scrum íslenska leiðin? Eðvald Möller á Háskólatorgi, HT-101 kl. 12-13. Þriðjudaginn 26. apríl
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Tue Apr 19 14:30:10 GMT 2011
Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar: Er Scrum íslenska leiðin?
Í hugbúnaðargeiranum hafa verið notaðar ýmsar aðferðir í verkefnastjórnun
og á undanförnum árum hefur Agile aðferðafræðin verið að ryðja sér til
rúms. Scrum er ein af þeim aðferðum sem tilheyra Agile aðferðafræðinni.
Hún er á margan hátt ólík hefðbundnum verkefnastjórnunaraðferðum, þar sem
allt er fyrirfram skjalfest og reynt að hafa breytingar, miðað við
upphaflega áætlun, eins litlar og mögulegt er. Velt verður upp spurninguni
hvort Scrum sé íslenska leiðin.
Eðvald Möller er aðjúnkt við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
Staður og stund:
Háskólatorg HT-101
Þriðjudaginn 26. apríl kl. 12-13
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110419/5f8a07d0/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 111886 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110419/5f8a07d0/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list