[Vid-stund] Á MORGUN: Málstofa í Hagfræðideild: Upplifun á streitu fyrir og eftir efnahagshrunið á Íslandi. Föstudaginn 15. apríl, kl. 11.00, Oddi 3. hæð fundarherbergi
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Thu Apr 14 13:29:54 GMT 2011
Málstofa í Hagfræðideild:
Upplifun á streitu fyrir og eftir efnahagshrunið á Íslandi
Efnahagshrunið á Íslandi í október 2008 var um margt einstakt í umfangi og
hraða og eru enn ófyrirséð þau áhrif sem efnahagshrunið mun mögulega hafa
á heilsufar þjóðarinnar. Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka áhrif
efnahagshrunsins á streitu þjóðarinnar. Rannsókning byggir á lýsandi
þjóðarúrtaki 18-79 ára Íslendinga (upphaflegt úrtak N=9807) og var gögnum
safnað á vegum Lýðheilsustöðvar með spurningalista árin 2007 og 2009.
Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til aukinnar áhættu á háu
streitustigi meðal landsmanna eftir efnahagshrunið (2009) samanborið við
fyrir efnahagshrunið (2007) og virðist breytingin að mestu leyti vera
borin uppi af hækkuðu streitustigi meðal kvenna.
Dr. Arna Hauksdótti er rannsóknarsérfræðingur við Miðstöð í
lýðheilsuvísindum
Staður og stund:
Oddi 3. hæð fundarherbergi
kl. 11.00,
Föstudaginn 15. apríl
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110414/a630a496/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 146845 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110414/a630a496/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list