[Vid-stund] Morgunverðarfundur og málþing 15. september nk á Grand Hótel um "Hvernig á að bregðast við niðurskurði næsta árs" og "Árangursríkar aðferðir í sparnaði í opinberum rekstri"
Ásta Möller
astam at hi.is
Mon Sep 6 15:26:19 GMT 2010
Fjármálaráðuneytið, Félag forstöðumanna ríkisstofnana, Capacent og Stofnun
stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ bjóða til tveggja aðskildra
viðburða; morgunverðarfundar málþings í Grand hótel Reykjavík 15.
september n.k. ......
Morgunverðarfundur kl. 8-10
"Hvernig á að bregðast við niðurskurði næsta árs-
Hver er stefna ríkisins? Hvað eru stofnanir þess að gera?" .*(sjá
meðfylgjandi auglýsingu )
Málþing kl. 10.15-12
"Árangursríkar aðferðir í sparnaði í opinberum rekstri:
" Margt smátt gerir eitt stórt" - Hvað getum við lært hvert af öðru"
**(sjá meðfylgjandi auglýsingu fyrir neðan morgunverðarfundinn)
Þátttökugjald á báða viðburðina, morgunverðarfund og málþing (morgunverður
innifalin) er 6900. Skráning hér: morgunverðarfundur og málþing
Þátttökugjald eingöngu á morgunverðarfund er 3900,- og er morgunverður
innifalinn Skráning hér: morgunverðarfundur- niðurskurður
Þátttökugjald eingöngu á málþingið eftir morgunverðarfundinn er kr. 3900
Skráning hér: málþing-árangursríkar aðferðir
Niðurskurður, aðhald, sparnaður, aukin hagkvæmni og skipulagsbreytingar í
rekstri hins opinbera, helst án þess að skerða gæði þjónustunnar, eru sem
stendur þau leiðarljós sem forstöðumenn ríkisstofnana starfa eftir Þeirri
vegferð er ekki lokið. Sökum stöðu efnahagsmála verða á næsta ári enn
hertar kröfur um aðhald og sparnaði í opinberum rekstri. Vísbendingar eru
um að verulegur árangur hafi náðst í rekstri ríkisstofnana á þessu ári,
þar sem stofnanir halda sig innan fjárheimilda í ríkari mæli en áður. Það
er afrakstur þrotlausrar vinnu stjórnenda og starfsmanna. Á
morgunverðarfundinum "Hvernig á að bregðast við niðurskurði næsta árs-
Hver er stefna ríkisins? Hvað eru stofnanir þess að gera?" munu
fjármálaráðherra og embættismenn fjármálaráðuneytisins fara yfir stefnu og
leiðbeiningar ráðuneytisins til stofnana á tímum niðurskurðar. Þá verða
kynntar niðurstöður nýrrar könnunar Capacent meðal forstöðumanna um
viðhorf þeirra til ýmissa þátta er varða niðurskurð í rekstri stofnana.
Forstöðumenn munu bregðast við og kynna áherslur sínar varðandi
forgangsröðun og vinnulag við niðurskurð næsta árs. Að loknum
morgunverðarfundi hefst málþing með yfirskriftinni Árangursríkar aðferðir
í sparnaði í opinberum rekstri ? Margt smátt gerir eitt stórt.- Hvað getum
við lært hvert af öðru? Þar munu níu aðilar þar af fimm forstöðumenn
miðla af reynslu sinni við að aðlaga rekstur sinna stofnana að þrengri
fjárhag.
Með bestu kveðju,
Ásta Möller
forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála
Institute of Public Management and Politics
Gimli við Sæmundargötu, 2. hæð, 101 Reykjavík
netfang astam at hi.is
s. 525-5454, gsm 8639307
http://www.stjornsyslustofnun.hi.is
http://www.stjornmalogstjornsysla.is/
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20100906/f8a295d9/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 64634 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20100906/f8a295d9/attachment-0002.gif
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 66953 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20100906/f8a295d9/attachment-0003.gif
More information about the Vid-stund
mailing list