[Vid-stund] Til kennara hagfr. og viðskfr.: Fimmtudaginn 18. feb. morgunverðarfundur fjármálaráðuneytis ofl. um endurskipulagningu opinberrar þjónustu á Íslandi
Margrét S. Björnsdóttir
msb at hi.is
Thu Feb 11 10:35:02 GMT 2010
Fjármálaráðuneytið, Sóknaráætlun 20/20, Félag forstöðumanna ríkisstofnana
og Stofnun stjórnsýslufræða við HÍ bjóða til......
...ráðstefnu og vinnustofu um endurskipulagningu opinberrar þjónustu
Grand Hótel – fimmtudaginn 18. febrúar 2010, kl. 8:00-11:00. Dagskráin
hefst kl. 8:30.
Þátttökugjald er 3.900 kr. og er morgunverður innifalinn. Skráning:
http://www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/endurskipulagning
1. Fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon kynnir það sem framundan er
og nauðsyn endurskipulagningar ríkisrekstrarins í því ljósi.
2. Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri og Arnar Másson
fjármálaráðuneyti kynna fyrirliggjandi hugmyndir að endurskipulagningu og
stjórnkerfisbreytingum.
3. Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri kynnir fyrirhugaðar tilfærslur
á verkefnum til sveitarfélaga og áhrif þeirra.
4. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri kynnir vinnulag við nýlega
sameiningu skattumdæma, se dæmi um endurskipulagningu opinberrar þjónustu.
5. Þátttakendur leggja inn hugmyndir að tækifærum í endurskipulagningu og
breyttri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
(Sjá nánari dagskrá neðst í póstinum)
Ráðstefnustjóri er Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri í
heilbrigðisráðuneytinu.
Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um umtalsverðar
stjórnkerfisbreytingar og umbætur í því skyni að gera þjónustu hins
opinbera við almenning og atvinnulíf eins góða og kostur er með fjármunum
sem til ráðstöfunar eru hverju sinni. Þá er í þingsályktunartillögu um
sóknaráætlun til að efla atvinnulíf og samfélag um allt land, sem nú
liggur fyrir Alþingi, fjallað um endurskipulagningu opinberrar þjónustu og
eflingu sveitarstjórnarstigsins. Markmiðið er að forgangsraða í
ríkisrekstrinum með nýjum hætti, verja grunnþjónustu, auka skilvirkni í
ríkisrekstri með stærri og hagkvæmari einingum, einfalda stjórnsýslu og
þjónustu, endurskoða verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og gera
ríkiskerfið betur í stakk búið til að takast á við breytingar.
Þó að staða ríkisfjármála kalli á endurskipulagningu eru breytingar á
ákveðnum sviðum löngu tímabærar, m.a. vegna breytinga sem orðið hafa á
þörfum fólks í samfélaginu, byggðaþróun og tækniþróun. Flest ráðuneyti
hafa farið yfir verkefnin sem þau sinna og við það hafa kviknað fjölmargar
hugmyndir um sameiningar stofnana og breytingar á verkefnum. Sumu hefur
þegar verið hrint í framkvæmd meðan annað er styttra á veg komið.
Fyrr í vetur var haldin ráðstefna um sameiningu og endurskipulagningu
stofnana. Þar var rætt almennt um það hvernig best væri að standa að
breytingum eins og þeim sem nú eru á döfinni. Þessi ráðstefna er framhald
af þeirri fyrri og skiptist hún í tvo hluta:
I. Í fyrri hlutanum verður rædd nauðsyn þess að ráðast í viðamiklar
skipulagsbreytingar á þessum tímapunkti og leitað svara við þremur
spurningum tengdum endurskipulagningu opinberrar þjónustu: Af hverju erum
við að endurskipuleggja opinbera þjónustu? Hvaða þjónustu eigum við að
endurskipuleggja? Hvernig förum við að því?
II. Í síðari hlutanum verður vinnustofa með þjóðfundarfyrirkomulagi þar
sem ráðstefnugestum gefst færi á að ræða tækifæri og möguleika sem felast
þeim hugmyndum sem uppi eru um breytingar.
Dagskrá
Kl. 8:00 Morgunverður og skráning þátttakenda.
Kl. 8:30 Ráðstefnustjóri býður gesti velkomna og fer yfir skipulag og
markmið fundarins.
Af hverju?
Kl. 8:40 Fjármálaráðherra fjallar um nauðsyn endurskipulagningar
opinberrar þjónustu.
Hvað?
Kl. 9:00 Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í
forsætisráðuneytinu, og Arnar Þór Másson, sérfræðingur í
fjármálaráðuneytinu, fara yfir helstu hugmyndir sem hafa verið til umræðu
innan ráðuneyta um endurskipulagningu þjónustu hjá ríkinu og tengja þær
við aðrar áformaðar stjórnkerfisbreytingar.
Kl. 9:20 Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri í samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytinu, fer yfir áform um eflingu
sveitarstjórnarstigsins, tilflutning verkefna frá ríki til sveitarfélaga
og hvaða áhrif hann getur haft á skipulag opinberrar þjónustu.
Hvernig?
Kl. 9:40 Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri greinir frá vinnu um
sameiningu níu skattaumdæma í eitt með mörgum starfsstöðvum.
Kl. 10:00 Vinnustofa um endurskipulagningu opinberrar þjónustu.
Þátttakendum, ásamt verkstjóra sem verður á hverju borði, er falið að
fjalla aðra hvora eftirfarandi spurninga og skila tillögum:
Hvar eru helstu tækifærin við sameiningu ráðuneyta og stofnana?
Hvar eru helstu tækifærin í tengslum við eflingu sveitarstjórnarstigsins
og aukins samstarfs um veitingu þjónustu ríkis og sveitarfélaga?
Kl. 11:00 Ráðstefnuslit
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20100211/4cbd5485/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list