[Vid-stund] Óskast sent á kennara deildarinnar: Stjórnmál og stjórnsýsla-Út er komið á vefnum síðsumarhefti - 1. tölublaðs 5. árgangs -sex fræðigreinar, auk bókadóma
Margrét S. Björnsdóttir
msb at hi.is
Mon Sep 21 14:09:14 GMT 2009
Ágætu kennarar- í viðskipta- og hagfræðideild.
Út er komið á vefnum síðsumarhefti - 1. tölublaðs 5. árgangs vefritsins
Stjórnmál og stjórnsýsla: http://www.stjornmalogstjornsysla.is/
Í heftinu eru sex fræðigreinar um fjölbreytt viðfangsefni stjórnmálafræða,
hagfræði, félags- og kynjafræða. Einnig ritdómur um Vigurklerkinn- Ævisögu
Sigurðar prests Stefánssonar, sem er rituð af honum sjálfum. Um bókina
skrifar Guðmundur J. Guðmundsson sagnfræðingur:
http://www.stjornmalogstjornsysla.is/index.php?option=com_content&task=view&id=430
Markmið vefritsins, sem er öllum opið, er að vera vettvangur fræðilegra
skrifa um stjórnmál, stjórnsýslu og samfélags- og lögfræðileg efni. Gefin
eru út tvö tölublöð á vefnum ár hvert, en fræðigreinar eru prentaðar í
árslok og seldar í áskrift á því formi. Í ritstjórn sitja auk
undirritaðrar þeir Arnar Þór Másson stjórnmálafræðingur, Gunnar Helgi
Kristinsson prófessor, Ómar H. Kristmundsson dósent, vefritstjóri er
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur. Einnig starfar með ritsjórn stór
hópur í sn. ráðgefandi ritstjórn.
http://www.stjornmalogstjornsysla.is/index.php?option=com_content&task=view&id=133&Itemid=46
Með bestu kveðjum, Margrét S. Björnsdóttir, Stofnun stjórnsýslufræða og
stjórnmála
Stjórnmál og stjórnsýsla-Fræðigreinar í þessu 1. tbl. 5. árgangi:
Kynjaskekkja í stjórnmálum: Breytingar og áhrifaþættir:
http://www.stjornmalogstjornsysla.is/index.php?option=com_content&task=view&id=438
Höfundar: Þorgerður Einarsdóttir dósent í kynjafræði við Háskóla Íslands.
Hún lauk fil. kand prófi í félagsfræði og sálfræði frá Gautaborgarháskóla
árið 1982 og doktorsprófi í félagsfræði frá sama háskóla árið 1997.
Þorgerður vann um árabil við kennslu í framhaldsskóla, sem verkefnisstjóri
hjá Iðntæknistofnun og sem sjálfstætt starfandi fræðimaður áður en hún hóf
störf sem lektor í kynjafræði við HÍ árið 2001. Guðbjörg Lilja
Hjartardóttir stjórnmálafræðingur, og doktorsnemi í kynjafræði við Háskóla
Íslands. Hún lauk BA-prófi (Hons. magna cum laude) í alþjóðastjórnmálum
frá Háskólanum í Cincinnati og MA-prófi í stjórnmálafræði frá sama skóla
árið 1998. Hún hefur starfað við verkefnastjórn og stundakennslu við HÍ
sl. ár.
Staða kvenna í landbúnaði: Kynjafræðilegur sjónarhóll:
http://www.stjornmalogstjornsysla.is/index.php?option=com_content&task=view&id=437
Höfundar: Hjördís Sigursteinsdóttir sérfræðingur hjá Rannsókna- og
þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri. Hún lauk BSc-prófi í viðskiptafræði
frá Háskólanum á Akureyri 1997 og MA-prófi í félagsfræði frá Háskóla
Íslands 2008. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir prófessor í félagsfræði við
Háskóla Íslands. Hún lauk BA-prófi í þjóðfélagsfræði frá Háskóla Íslands
1984, MA-prófi í félagsfræði frá Lundarháskóla 1990 og doktorsprófi frá
sama háskóla árið 1995. Hún starfaði um árabil við rannsóknir hjá
Vinnueftirlitinu.
Þróun refsinga fyrir kynferðisbrot:
http://www.stjornmalogstjornsysla.is/index.php?option=com_content&task=view&id=436
Höfundur: Ragnheiður Bragadóttir prófessor í refsirétti við lagadeild
Háskóla Íslands. Hún lauk embættisprófi í lögfræði frá lagadeild HÍ 1982
og stundaði framhaldsnám í refsirétti og afbrotafræði við lagadeild
Kaupmannahafnarháskóla 1982-83. Hún hefur stundað kennslu og rannsóknir
við lagadeild frá árinu 1982 og verið mjög virk í norrænu samstarfi á
fræðasviði sínu.
Áhrif aðildar að Evrópusambandinu á fullveldi Íslands:
http://www.stjornmalogstjornsysla.is/index.php?option=com_content&task=view&id=435
Höfundur: Jóhanna Jónsdóttir doktorsnemi í Evrópufræðum við
Cambridge-háskóla. Hún lauk meistaraprófi í alþjóðasamskiptum frá
Sydney-háskóla í Ástralíu 2005 og BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla
Íslands 2003.
Heimur hátekjuhópanna: Um þróun tekjuskiptingar á Íslandi 1993-2007:
http://www.stjornmalogstjornsysla.is/index.php?option=com_content&task=view&id=434
Höfundar: Arnaldur Sölvi Kristjánsson sérfræðingur hjá Þjóðmálastofnun
Háskóla Íslands. Hann lauk BS í hagfræði frá Háskóla Íslands 2008 og
leggur nú stund á framhaldsnám í hagfræði við Háskóla Íslands. Stefán
Ólafsson prófessor í þjóðfélagsfræði við Háskóla Íslands. Hann lauk MA í
þjóðfélagsfræði frá Edinborgarháskóla 1976, D.Phil. í félagsfræði frá
Oxford Háskóla 1984. Var forstöðumaður Félagsvísindastofnunar H.Í.
1985-1999 og Borgarfræðaseturs 2000-2005.
Sviptingar í fjárhag lífeyrissjóðanna:
http://www.stjornmalogstjornsysla.is/index.php?option=com_content&task=view&id=433
Höfundur: Ólafur Ísleifsson lektor við viðskiptadeild Háskólans í
Reykjavík. Hann lauk BS í stærðfræði frá Háskóla Íslands 1978 og MSc-prófi
í hagfræði frá London School of Economics and Political Science 1980.
Studying judicial activism: A review of the quantitative literature:
http://www.stjornmalogstjornsysla.is/index.php?option=com_content&task=view&id=432
Höfundur: Svandís Nína Jónsdóttir aðjúnkt og dr. nemi við
stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Hún lauk BA prófi í stjórnmálafræði
frá Háskóla Íslands árið 1998 og MS prófi í opinberri stjórnsýslu og
réttarfélagsfræði frá American University í Bandaríkjunum árið 2000.
Public Impact: Citizen influence in local government in Iceland:
http://www.stjornmalogstjornsysla.is/index.php?option=com_content&task=view&id=431
Höfundur: Gunnar Helgi Kristinsson prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands. Hann lauk BA í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands 1981, M.Sc. í
sömu grein frá London School of Economics and Political Science 1982,
Ph.D. í stjórnmálafræði frá University of Essex 1990.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20090921/dfc4e5e6/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list