[Vid-stund] Til kennara í viðskipta- og hagfr.deild: Morgunmálþing fimmtud. 15. okt.: Hvernig getum við varðveitt góðan starfsanda á tímum niðurskurðar og skerðinga á kjörum starfsmanna?
Margrét S. Björnsdóttir
msb at hi.is
Mon Oct 5 12:33:26 GMT 2009
Hvernig getum við varðveitt góðan starfsanda á tímum niðurskurðar og
skerðinga á kjörum starfsmanna?
Fimmtudaginn 15. október kl. 8.30-10.00 á Grand hótel í Reykjavík.
Annað málþing haustsins í samstarfi Stofnunar stjórnsýslufræða og
stjórnmála og Félags forstöðumanna ríkisstofnana
Fyrirlestrar og holl ráð; Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Arndís Ósk
Jónsdóttir, Stefán Eiríksson og Erna Einarsdóttir.
Skráning: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/starfsandi
Verð; kr. 3.900.- og er morgunverður innifalinn.
Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þessa viðfangsefnis frammi fyrir þeim
áskorunum sem stjórnendur standa í þeim niðurskurði og skipulagsbreytingum
sem framundan eru í rekstri opinberra stofnana, bæði ríkis og raunar
sveitarfélaga einnig. Á málþinginu munu fræðimenn, fagfólk og reyndir
stjórnendur fara yfir hagnýtar aðferðir og holl ráð sem stjórnendur geta
nýtt sér við aðstæður dagsins í dag, þ.e. hvað stjórnendur geti gert til
að stuðla að góðum starfsanda á erfiðum tímum og hvað stofnanir geti gert
til að skapa menningu þar sem stutt er við starfsmenn á erfiðum tímum?
Fyrirlestrar:
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, er dósent við viðskiptadeild Háskóla Íslands,
en hún er höfundur bóka um köllun í starfi, virkjunar vonar og heppni í
eigin lífi og um sveigjanleika fyrirtækja auk þess sem hún kennir um
stjórnun, skipulagsheildir forystu og þekkingarstjórnun.
Arndís Ósk Jónsdóttir, MSc. í vinnusálfræði er kennari í mannauðsstjórnun
í MPA-námi í opinberri stjórnsýslu og forstöðumaður mannauðsráðgjafar ParX
viðskiptaráðgjafar IBM.
Á eftir þeirra erindum gefa holl ráð frá eigin reynslu þau Stefán
Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, sem tekist hefur á við
umfangsmikil breytinga- og skipulagsverkefni á liðnum árum og Erna
Einarsdóttir framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Landspítala
háskólasjúkrahúsi, en segja má að sú stofnun hafi verið í stöðugu
umbreytinga- og sparnaðarferli frá stofnun hins sameinaða sjúkrahúss árið
2000.
Fundarstjóri verður Magnús Guðmundsson forstjóri Landmælinga Íslands og
formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20091005/008c5245/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list