[Vid-stund] Óskast áframsent öllum kennurum deildanna: Minnt á frest til 10. nóv. til að skila fræðigreinum í desember tölublað, 2009: Stjórnmál og stjórnsýsla -Veftímarit

Margrét S. Björnsdóttir msb at hi.is
Tue Nov 3 13:52:26 GMT 2009


Veftímaritið gegnir fjölþættu hlutverki fyrir íslensk stjórnmála- og 
stjórnsýslufræði. Í því er ritrýndur hluti sem gegnir hlutverki 
fræðitímarits í stjórnmála- og stjórnsýslufræðum, en slíkt rit var ekki 
til staðar áður. Með því er stjórnmála- og stjórnsýslufræðingum og öðrum 
þeim er skrifa um þau eða tengd viðfangsefni gefinn kostur á að gera 
rannsóknir sínar aðgengilegar og auka þannig fræðilega umfjöllun. Almennu 
greinarnar fjalla um sömu viðfangsefni, en eru opinn vettvangur.  Í 
vefritinu eru eftirtaldir efnisflokkar; ritrýndar fræðigreinar, greinar 
almenns eðlis og bókadómar. Þegar hafa verið gefin út átta  tölublöð á 
vefnum og fjórir árgangar ritrýndra greina  verið prentaðir og eru 
fáanlegar hjá Háskólaútgáfunni, helstu bókabúðum og  bókasöfnum.
_________________

Minnum á frest 10. nóvember nk. til að skila greinum í ritrýndan hluta 
desember tölublaðs 2009- almennan hluta 25. nóvember: Stjórnmál og 
stjórnsýsla -Veftímarit: www.stjornmalogstjornsysla.is

Ágæti viðtakandi.
Um leið og við bendum þér á vefrit okkar um Stjórnmál og stjórnsýslu, sem 
er öllum opið á netinu viljum við minna á næsta útgáfudag ( ca. 10. 
desember  2009) og skilafresti fyrir greinar í tímaritið Stjórnmál og 
stjórnsýsla- veftímarit. Eru allir fræði- og fagmenn sem fást við efni er 
tengjast stjórnmálum eða stjórnsýslu hvattir til að íhuga að nýta sér 
þennan vettvang. Skilafrestur fyrir ritrýndar greinar er 10. nóvember nk. 
(lengd 6-10 þús. orð), en greinar almenns eðlis 25. nóvember (lengd 4-10 
þús. orð).  Allt efni vefritsins og leiðbeiningar til höfunda má sjá á: 
www.stjornmalogstjornsysla.is
Samkvæmt mati Rannsóknasviðs H.Í. hingað til nær tímaritið fyrir ritrýndu 
greinarnar 1. flokki í þeirra mati:”1. flokkur: Fagleg ritstjórn, stífar 
formlegar kröfur, ítarleg fræðileg ritrýni (mögulegt mat á greinum m.v. 
skala kjaranefndar 10 stig).”

Ritstjórar ritrýnda hluta tímaritsins eru Arnar Þór Másson, MSc. og Dr. 
Gunnar Helgi Kristinsson. Efni má senda ritstjórum á tölvupóstfang 
veftímaritsins er stogst at hi.is Sjá nánari leiðbeiningar um uppsetningu og 
frágang efnis á vef tímaritsins: www.stjornmalogstjornsysla.is 

Með bestu kveðjum frá ritstjórn,
Arnar Þór Másson
Gunnar Helgi Kristinsson
Haukur Arnþórsson vefritstjóri
Margrét S. Björnsdóttir.

Í ráðgefandi ritstjórn eru þau 
Auðunn Arnórsson, MA í sagnfræði og stjórnmálafræði, og D.E.E.A í 
Evrópufræðum 
Baldur Þórhallsson, Ph.D. í stjórnmálafræði
Brynhildur Ólafsdóttir, MA í stjórnmálafræði
Davíð Logi Sigurðsson, MA í írskum fræðum og - stjórnmálum
Eiríkur Bergmann Einarsson, Cand.Scient. Pol. og doktorsnemi við 
stjórnmálafræðiskor H.Í.
Grétar Þór Eyþórsson, Ph.D. í stjórnmála- og stjórnsýslufræðum
Guðmundur Heiðar Frímannsson, Ph.D. í siðfræði
Gústaf Adolf Skúlason, M.Sc. í milliríkjasamskiptum
Halldór Grönvold, MA í vinnumarkaðsfræðum
Hanna Birna Kristjánsdóttir, MA í stjórnmálafræði
Helga Jónsdóttir, cand. jur.
Guðni Th. Jóhannesson, Ph.D. í sagnfræði
Hannes H. Gissurarson, D.Phil. í stjórnmálafræðum
Helgi Skúli Kjartansson, cand.mag. í sagnfræði
Indriði H. Indriðason, Ph.D. í stjórnmálafræði
Jóhann M. Hauksson, Ph.D. í stjórnmálafræði
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Ph.D í upplýsingafræði
Magnús Pétursson, hagfræðingur
Ólafur Þór Gylfason M.Sc.í aðferða- og tölfræði
Ólafur Þ. Harðarson, Ph.D. í stjórnmálafræði
Ólafur Ísleifsson, M.Sc. í hagfræði
Ólafur Þ. Stephensen, M.Sc. í alþjóðastjórnmálum
Óli Jón Jónsson M.S. í evrópustjórnmálum
Ómar H. Kristmundsson, Ph.D. í stjórnsýslufræðum
Róbert Ragnarsson, MA í stjórnmálafræði
Silja Bára Ómarsdóttir, MA í alþjóðasamskiptum
Steinunn Halldórsdóttir, EMPA í stjórnsýslufræðum
Svala Ísfeld Ólafsdóttir, cand. jur. og BA í frönsku
Svanborg Sigmarsdóttir, MA í stjórnmálafræði
Svandís Nína Jónsdóttir, M.Sc. í stjórnmálafræði og doktorsnemi við 
stjórnmálafræðiskor H.Í.
Trausti Fannar Valsson, cand. jur. og Ph.D nemi
Þorsteinn Magnússon, Ph.D. í stjórnmálafræði


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20091103/ca71d61d/attachment.html 


More information about the Vid-stund mailing list