[Vid-stund] Ráðstefna - Þjóðarspegilinn í október
Kristín Klara Einarsdóttir
kke at hi.is
Tue May 5 15:44:11 GMT 2009
Þjóðarspegill 2009
Viltu flytja fyrirlestur á Ráðstefnu X um rannsóknir í félagsvísindum?
Ráðstefnan Rannsóknir í félagsvísindum X verður haldin föstudaginn 30.
október 2009. Að ráðstefnunni stendur félagsvísindasvið Háskóla Íslands.
Fyrirlestrar á ráðstefnunni verða gefnir út í ráðstefnuritum sem koma út á
ráðstefnudaginn. Aðeins þeir sem gefa út fyrirlestur sinn í viðkomandi
ráðstefnuriti tala á ráðstefnunni.
Allir sem starfa á fræðasviðum þeim sem eru undir hatti félagsvísindasviðs
eiga þess kost á að flytja fyrirlestur á ráðstefnunni. Vegna mikillar
ásóknar og takmarkaðs rýmis mun hver fræðimaður aðeins fá að flytja einn
fyrirlestur. Þeir sem vilja halda fyrirlestur á ráðstefnunni skulu senda
útdrátt (abstract) til forstöðumanns félagsvísindastofnunar, Magnúsar Árna
Magnússonar (mam at hi.is) fyrir 29. maí 2009. Útdrátturinn á að vera 300 til
400 orð að lengd þar sem reifað er megininntak fyrirlestrarins. Þann 5.
júní liggur fyrir hvaða fyrirlestrar hafa verið samþykktir til flutnings.
Skila á inn fyrirlestri sem tilbúinn er til birtingar í ráðstefnuriti
fyrir 10. september 2009.
Allar nánari upplýsingar um ráðstefnuna veita Magnús Árni Magnússon (
mam at hi.is) og Guðlaug Júlía Sturludóttir (gjs at hi.is).
Kveðja,
Kristín Klara Einarsdóttir
deildarstjóri
Viðskipta- og hagfræðideildar
Háskóla Íslands
Sími 525-4501
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20090505/50ed50b7/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list