[Vid-stund] Minnt á nk. föstudag: Óskast sent kennurum viðsk. og hagfr.d.: Morgunverðarmálþing föstud. 13. mars nk.: Hvernig má ná auknum árangri í rafrænni stjórnsýslu? Hvað má læra af öðrum OECD ríkjum?

Margrét S. Björnsdóttir msb at hi.is
Mon Mar 9 09:36:36 GMT 2009


Hvernig má ná auknum árangri í rafrænni stjórnsýslu? Hvað má læra af öðrum 
OECD ríkjum?

Föstudaginn 13. mars nk. kl. 8.00-ca. 10.00 verður haldið á Grand hótel í 
Reykjavík morgunverðarmálþing með einum af helstu sérfræðingum OECD í 
árangri ríkja og stofnana á sviði rafrænnar stjórnsýslu, nýútskrifuðum 
doktor frá Háskóla Íslands á þessu sviði og þeim sem stýra innleiðingu 
rafrænnar stjórnsýslu á Íslandi fh. forsætisráðuneytisins. Fundarstjóri er 
Haukur Ingibergsson formaður Félags forstöðumanna ríkisstofana.
Að málþinginu standa Félag forstöðumanna ríkisstofnana, forsætisráðuneyti, 
Stofnun stjórnsýslufræða v. Háskóla Íslands og Skýrslutæknifélag Íslands.
Þátttökugjald er kr. 4.900.- og er morgunverður innifalinn, verð f. 
háskólanema kr. 2.500.-. Skráning er á hlekknum: 
http://www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/rafraenstjornsysla

Megintilgangur málþingsins er að fjalla um þætti sem ráða árangri ríkja og 
stofnana á þessu sviði:

Dagskrá:
8.30-9.10: Yih-Jeou Wang: E-Government development in OECD countries – 
lessons learned: 
"After a short introduction on how Iceland compare in different 
international benchmarkings, Mr. Wang will focus on lessons learned from 
the last 10 years of e-government work at the OECD: a number of 
cross-cutting challenges will be described (e.g. leadership, organisation, 
collaboration and co-operation, and capacity for implementation) based on 
recent OECD studies and eight country studies of e-government. Using the 
international development trends as seen today, Mr. Wang will give his bid 
on how the e-government agenda might look like in 2020."
Yih-Jeou Wang stýrir verkefnum OECD er lúta að rafrænni stjórnsýslu (OECD 
E-Government Project ), árangri einstakra landa og samanburði milli landa 
á árangri, og áhrifum rafrænnar stjórnsýslu á stjórnun hins opinbera. Hann 
hefur fengist við þetta svið frá árinu 1995 fyrst í Danmörku og síðan hjá 
OECD. 

 9.15-9.35: Dr. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur: Hvað skýrir slaka 
útkomu Íslands í rafrænni stjórnsýslu og hvaða leiðir eru líklegar til að 
bæta þar úr?
Haukur mun kynna meginniðurstöður sinnar rannsóknar og velta fyrir sér 
hvaða leiðir gætu skilað betri árangri í framtíðinni.

9.40-ca. kl. 10.00: Guðbjörg Sigurðardóttir skrifstofustjóri í 
forsætisráðuneyti: Árangur í rafrænni stjórnsýslu - Breytt verklag byggt á 
reynslu.
Guðbjörg mun fjalla um úttektir sem gerðar hafa verið á Íslandi um rafræna 
stjórnsýslu, hvaða lærdóm opinberir aðilar hafa dregið af þeim og hvernig 
verklagi hefur verið breytt í kjölfar þeirra til að bæta árangur í 
rafrænni stjórnsýslu. 




-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20090309/588a1328/attachment.html


More information about the Vid-stund mailing list