[Vid-stund] Re: [Hagfraedideild] áríðandi vegna sjúkra- og upptökuprófanna í janúar
Kristín Klara Einarsdóttir
kke at hi.is
Tue Jan 6 13:35:46 GMT 2009
Sæl.
Þessu get ég svarað:
Skráningu í sjúkra- og upptökuprófin í janúar lýkur um hádegi á morgun,
miðvikudag, og þá liggja fjöldatölur endanlega fyrir.
Nú þegar getum við farið inn í Ugluna og athugað hvort einhverjir hafi
skráð sig og sýnist mér að prófa þurfi í flestum námskeiðum miðað við þá
athugun mína.
Kennarar þurfa að koma með prófin til fjölföldunar á skrifstofu á
miðvikudag og fimmtudag (ef ekki, þurfa starfsmenn á skrifstofu að mæta um
helgina til að fjölfalda próf sem eru á mánudag).
Hef ekki heyrt um að breyta eigi greiðslum vegna yfirferðar, en vonandi
verð ég með þeim fyrstu til að frétta það!
Kveðja,
KK
Kristín Klara Einarsdóttir
skrifstofustjóri
Viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Íslands
Sími 525-4501
"Þórólfur Matthíasson (Thórólfur Matthíasson)" <totimatt at hi.is>
06.01.2009 11:29
To
Kristín Klara Einarsdóttir <kke at hi.is>
cc
vidskiptadeild at hi.is, hagfraedideild at hi.is, vid-stund at hi.is
Subject
Re: [Hagfraedideild] áríðandi vegna sjúkra- og upptökuprófanna í janúar
Sæl öll, það væri nú gaman að vita hvort og hvenær á að afhenda próf
skv. þessu nýja fyrirkomulagi. Er skráning ljós? Er vitað hvort þarf
að halda próf í öllum áföngum? Er ljóst hvort einhver sem féll í
desember ætli að mæta í janúarpróf? Allt eru þetta mjög mikilvægar
upplýsingar sem þurfa að liggja fyrir áður en kennari fer að semja
próf. Auk þess: Í ljósi þess að yfirstjórn skólans er hægt og
bítandi að auka kennsluskyldu (í nafni aukinna rannsókna!!!) þá vil ég
vita hvernig á að greiða fyrir hraðsamningu prófs. Sum próf eru 30-40
síðna krossapróf svo dæmi séu tekin, og ljóst að það þarf meira en
dagvinnu til að ganga frá slíku. Kveðja, Þórólfur.
--
____________________________________________________________
Professor Thorolfur Matthiasson,
Faculty of Economics and |Voice: +354 525 4530
Business Administration,|Fax: +354 552 6806
The University of Iceland,|Home: +354 567 1510
Odda v/Sturlugotu, |Mobile: +354 691 0812
IS-101 Reykjavik, |
Iceland |E-mail:totimatt at hi.is
____________________________________________________________
On 6.1.2009, at 11:18, Kristín Klara Einarsdóttir wrote:
>
> Sæl.
> Í ljósi þess að próftafla mun ekki liggja fyrir fyrr en á föstudag
> er of seint í mörgum tilfellum að merkja prófin þá með dagsetningu
> og tíma þar sem starfsfólk skrifstofu þarf tíma til að fjölfalda þau
> og koma til skrifstofu prófstjóra. Senda þarf prófin til skrifstofu
> til fjölföldunar á miðvikudag og fimmtudag.
>
> Skv. upplýsingum frá prófstjórn er því lagt til að sjúkra- og
> upptökuprófin verði merkt þannig að einungis sé tekið fram að prófið
> sé sjúkra- og upptökupróf í janúar 2009 og tímalengd prófs að
> sjálfsögðu.
>
> Kv.
> KK
>
>
>
>
>
> Kristín Klara Einarsdóttir
> skrifstofustjóri
> Viðskipta- og hagfræðideild
> Háskóla Íslands
> Sími 525-4501
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
> _______________________________________________
> Hagfraedideild mailing list
> Hagfraedideild at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/hagfraedideild
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20090106/cc588530/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list