[Vid-stund] skrifstofan verður lokuð á Þorláksmessu og milli jóla og nýárs

Kristín Klara Einarsdóttir kke at hi.is
Thu Dec 17 13:49:14 GMT 2009


Sæl öll.
Skrifstofan verður lokuð á Þorláksmessu og milli jóla og nýárs. Starfsfólk 
í stjórnsýslu skólans fékk  2 frídaga í jólagjöf.
Við á skrifstofunni munum nýta þá á milli jóla og nýárs og nota annað 
hvort sumarleyfisdaga sem við höfum geymt eða taka okkur launalaust leyfi 
í þessa 2 daga til viðbótar.
Skrifstofan verður því lokuð eftir 22. des. til mánudagsins 4. janúar.

Allir kennarar, bæði fastir kennarar og stundakennarar, setja sjálfir 
einkunnir í Ugluna svo þessi lokun á ekki að koma að sök.

Ef halda þarf einhver sjúkrapróf fyrir þá sem eru að útskrifast í febrúar 
verða þau ekki haldin fyrr en eftir miðjan janúar - vonandi engin.

Kv.
KK





Kristín Klara Einarsdóttir
deildarstjóri
Viðskipta- og hagfræðideildar
Háskóla Íslands
Sími 525-4501
















-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20091217/3360f114/attachment.html 


More information about the Vid-stund mailing list