[Vid-stund] Frá námsbókasafni

Hildur Bjarnadóttir hildurb at hi.is
Tue Dec 15 11:33:10 GMT 2009


Sólveig Ögmundsdóttir <solveigo at bok.hi.is> 
15.12.2009 11:20

To
<gimli at hi.is>
cc

Subject
Frá námsbókasafni






Bréf til kennara 
Ágætu kennarar. 
Senn líður að upphafi vormisseris og mun starfsfólk Landsbókasafns Íslands 
- Háskólabókasafns, eins og áður,  breyta lánstíma valinna rita í samræmi 
við óskir kennara svo nemendur hafi greiðari aðgang að þeim. Til þess að 
bækurnar séu komnar á námsbókasafn þegar nemendur fá leslista í hendur er 
mikilvægt að kennarar sendi lista til námsbókasafns með þeim bókum sem 
þeir óska eftir að fái skemmri lánstíma sem allra fyrst.  Best væri að fá 
bókalista senda fyrir áramót en þeir sem það gera fá tryggingu fyrir því 
að bækur verði komnar á námsbókasafn við upphaf kennslu í janúar.  Vegna 
mikilla anna á námsbókasafni við upphaf misseris getur orðið einhver bið á 
því að bókalistar sem berast mér eftir áramót verði afgreiddir.
Á næstu dögum er stefnt að því að taka niður bækur þeirra námskeiða sem nú 
eru skráð á námsbókasafni Lbs.-Hbs. á haustmisseri.  Vinsamlegast látið 
mig vita fyrir 19. desember ef þið viljið að bækur ákveðinna námskeiða 
standi áfram í hillu á námsbókasafni.
 
Með kærri jólakveðju, 
Sólveig D. Ögmundsdóttir 
umsjónarmaður námsbókasafns Lbs.-Hbs. 
namsbok at bok.hi.is 
 
 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20091215/6f5d032f/attachment.html 


More information about the Vid-stund mailing list