[Vid-stund] Óskast áframsent kennurum deildanna: Í dag fimmtudag frá kl. 16.15- ca 18.00 er þér hjartanlega boðið til síðdegissamkvæmis v. útkomu 2. tbl.5. árgangs Vefritsins; Stjórnmál og stjórnsýsla- tveir stuttir fyrirlestrar um spennandi Evrópumálefni, umræður, móttaka
Margrét S. Björnsdóttir
msb at hi.is
Thu Dec 10 08:22:24 GMT 2009
Til kennara í viðskipta- og hagfræðideild HÍ:
Um leið og við þökkum mörgum ykkar samstarf liðinna ára viljum við með
þessu bréfi viljum við bjóða ykkur til útgáfuhófs í tilefni af útkomu
desemberheftis vefritsins; Stjórnmál og stjórnsýslaog þætti vænt um ef sem
flestir sæju sér fært að líta við.
Hófið hefst kl. 16.15 nk. fimmtudag í Odda stofu 101 með stuttum
fyrirlestrum höfunda tveggja fræðigreina sem báðar fást við Ísland og
Evrópusambandið þó með ólíkum hætti sé; annars vegar greinin "Iceland’s
Neighbours in the EU Entry Queue: Contrasts or Parallels in EU Enlargement
to the North and the South-East" og hins vegar greinin "Sense of
Sovereignity. How National Sentiments have Influenced Iceland‘s European
Policy".
Höfundar greinanna eru þau Alyson J. K. Bailes, aðjúnkt við
stjórnmálafræðideild HÍ, Jóhanna María Þórdísardóttir MA í
alþjóðasamskiptum og Eiríkur Bergmann dósent í stjórnmálafræði og
forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst.
Að þeirra erindum verða fyrirspurnir og umræður til ca. kl. 17.15 og síðan
móttaka í fundarherbergi félagsvísindasviðs á jarðhæðinni í Odda.
Efni tölublaðsins verður fjölbreytt átta fræðigreinar, tvær almennar
greinar og allt að fjórtán bókadómar um nýútkomnar bækur um stjórnmál,
samtímasögu, ævisögur áhrifafólks í stjórnmálum og samfélagsmálum,
hagfræði ofl.
Með bestu kveðjum frá ritstjórn,
Arnar Þór Másson,
Gunnar Helgi Kristinsson
Haukur Arnþórsson
Margrét S. Björnsdóttir
Ómar H. Kristmundsson.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20091210/767c7ba2/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list