[Vid-stund] Fw: Vinsamlegast komið á framfæri: námskeið og kynningar fyrir kennara í Kennslumiðstöð

Kristín Klara Einarsdóttir kke at hi.is
Tue Jan 8 16:44:43 GMT 2008


Kristín Klara Einarsdóttir
skrifstofustjóri
Viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Íslands

----- Forwarded by Kristín Klara Einarsdóttir/HI/IS on 08.01.2008 16:53 
-----

Harpa Pálmadóttir/HI/IS 
08.01.2008 16:04

To
Deildarforsetar, Skorarformenn, Skrifstofustjórar deilda
cc

Subject
Vinsamlegast komið á framfæri: námskeið og kynningar fyrir kennara í 
Kennslumiðstöð






Sæl og gleðilegt ár

Mig langar að biðja ykkur um að vekja athygli kennara á eftirfarandi 
námskeiðum Kennslumiðstöðvar sem haldin eru á þessu misseri:


9. janúar og 17. janúar kl. 15-17 ~ Kynning á kennsluvef Uglunnar
Á kynningunni er farið ítarlega í helstu þætti kennsluvefsins og hvaða 
möguleika hann hefur upp á að bjóða fyrir kennara. Meðal efnis er hvernig 
stofna má hópa og umræðuþræði, útbúa fjölvalspróf, skrá einkunnir og 
fylgjast með skoðunarsögu skjala.

Leiðbeinandi: Ása Björk Stefánsdóttir, verkefnisstjóri hjá Kennslumiðstöð. 

Dagsetning: miðvikudagurinn 9. janúar kl. 15-17 og fimmtudagurinn 17. 
janúar kl. 15-17 (sitthvort námskeiðið)
Staðsetning: Kennslumiðstöð, íþróttahúsi 2. hæð
Skráning á: http://www2.hi.is/page/kynning_ugla_v08


10. janúar kl. 15-15.50 ~ Kynning á MindManager (hugkort)
Á kynningunni er farið yfir helstu notkunarmöguleika MindManager Pro7, sem 
er einfaldur en öflugur hugbúnaður sem nýtist á einstakan hátt við 
verkefnastjórnun og skipulagningu almennt, teymisvinnu, skýrslugerð, 
fundarstjórnun, stjórnun upplýsinga, hugarflug og kynningar. MindManager 
sýnir heildarmyndina og hjálpar notendum að hafa yfirsýn yfir viðkomandi 
verkefni.

Leiðbeinandi: Sigrún Stefánsdóttir, verkefnisstjóri hjá Verkefnalausnum
Dagsetning: fimmtudagurinn 10. janúar kl. 15-15.50
Staðsetning: Oddi, stofa 101
Skráning á: Ekki þarf að skrá sig á kynninguna


16. janúar kl. 15-18 ~ Nám og kennsla í háskólum
Á námskeiðinu verður fjallað um nám og kennslu á háskólastigi. Helstu 
umfjöllunarefni eru: Þjónusta við kennara, nám og kennsla í háskólum, 
kennsluvefur Háskóla Íslands (UGLA) og gerð kennsluáætlana. Námskeiðið er 
sérstaklega ætlað kennurum sem nýlega hafa hafið störf.

Leiðbeinandi: Guðrún Geirsdóttir, lektor í kennslufræði við HÍ
Dagsetning: miðvikudagurinn 16. janúar kl. 15-18
Staðsetning: Kennslumiðstöð, íþróttahúsi 2. hæð
Skráning á: http://www2.hi.is/page/nam_skraning_v08


30. janúar og 5. febrúar kl. 16-17 ~ Kynning á Tölvunám.is fyrir 
starfsfólk H.Í.
Frá og með 15. janúar gefst starfsfólki og stúdentum Háskólans tækifæri á 
að nýta sér gagnvirka kennsluvefinn: Tölvunám.is (www.tolvunam.is). 
Kennsluvefurinn inniheldur kennslu á öll helstu forrit Office vöndulsins 
s.s. Word, Excel, PowerPoint, FrontPage, Outlook, Access auk Lotus Notes 
og Photoshop. Starfsfólk og stúdentar HÍ hafa aðgang að Tölvunám.is í 
gegnum allar tölvur á háskólasvæðinu auk þess sem aðgangur er einnig opinn 
heimilum með ADSL eða VPN tengingu frá RHÍ.

Á kynningunni verður farið yfir möguleika kennsluvefsins, uppbyggingu hans 
og hvernig hægt er að fá aðgang að honum heiman frá.

Leiðbeinandi: Ásta Vigdís Jónsdóttir, verkefnisstjóri hjá Kennslumiðstöð
Dagsetning: miðvikudagurinn 30. janúar kl. 16-17 og þriðjudagurinn 5. 
febrúar kl. 16-17
Staðsetning: Kennslumiðstöð, íþróttahúsi 2. hæð
Skráning á: http://www2.hi.is/page/tolvunam_skraning_v08 


7. febrúar kl. 15-17 ~ powerpoint í kennslu
Á námskeiðinu verður fjallað um framsetningu á efni út frá 
kennslufræðilegu sjónarmiði.

Leiðbeinandi: Ása Björk Stefánsdóttir verkefnastjóri Kennslumiðstöðvar
Dagsetning: fimmtudagurinn 7. febrúar kl. 15-17
Staðsetning: Kennslumiðstöð, íþróttahúsi 2. hæð
Skráning á: http://www2.hi.is/page/powerpoint_skraning_v08


13. febrúar kl. 15-17 ~ Fjölbreyttar aðferðir við notkun kennslukerfa
Á námskeiðinu verður farið í hvernig nýta má þau verkfæri sem rafræn 
námsumhverfi bjóða upp á. Sýnd verða dæmi um hvernig hægt er að notfæra 
sér verkfæri úr kennsluvef Uglunnar og námsumsjónarkerfinu Moodle (t.d. 
umræður, orðalistar, wiki og könnunarkerfi), upptökur (eMission) og 
gagnvirka snertiskjái.

Leiðbeinandi: Ása Björk Stefánsdóttir, verkefnisstjóri hjá Kennslumiðstöð
Dagsetning: miðvikudagurinn 13. febrúar kl. 15-17
Staðsetning: Kennslumiðstöð, íþróttahúsi 2. hæð
Skráning á: http://www2.hi.is/page/fjolbreyttar_skraning_v08


15. apríl kl. 15-18 ~ Samhæft námsskipulag
Við skipulag námskeiða er mikilvægt að gæta þess að námsmarkmið séu skýrt 
fram sett, þ.e. að sú þekking, geta og hæfni sem nemandi á að búa yfir að 
námi loknu sé tilgreind. Enn fremur skiptir máli að samræmi sé á milli 
markmiða námskeiðs, náms- og kennsluaðferða svo og námsmat. Á námskeiðinu 
eru kynntar hugmyndir Biggs um samhæft námsskipulag (curriculum 
alignment). Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti til leiks með 
kennsluáætlanir námskeiða sinna (eða drög).

Leiðbeinandi: Guðrún Geirsdóttir, lektor við H.Í.
Dagsetning: þriðjudagurinn 15. apríl kl. 15-18
Staðsetning: Kennslumiðstöð, íþróttahúsi 2. hæð
Skráning á: http://www2.hi.is/page/samhaeft_skraning_v08

Bestu kveðjur,

Harpa
--------------------------
Harpa Pálmadóttir
Fræðslustjóri Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands
Íþróttahúsi HÍ, 2.hæð
101 Reykjavík
Sími: 525 4447
Vefsíða Kennslumiðstöðvar
Vefsíða fjarnáms
 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20080108/9747c17c/attachment.html


More information about the Vid-stund mailing list