[Vid-stund] Til kennara stjórnmálafr.deildar (fyrr og nú): Desember útgáfa Vefritsins Stjórnmál og stjórnsýsla komin á vefinn; átta vandaðar greinar um stjórnmál, -sýslu og samfélag, auk tíu bókadóma

Margrét S. Björnsdóttir msb at hi.is
Fri Dec 19 12:41:38 GMT 2008


M. bestu kveðjum, Margrét S. Björnsdóttir

Desemberútgáfa Vefritsins Stjórnmál og stjórnsýsla komið á vefinn: 
www.stjornmalogstjornsysla.is
-átta greinar um; stjórnmál, stjórnsýslu, utanríkismál, vinnumarkaðsmál, 
lok íslenska efnahagsundursins og viðhorf dómara í málum er snerta 
kynferðisafbrot gegn börnum, auk tíu umsagna um nýjar bækur á sviði 
samfélags- og stjórnmála

Höfundar greinanna leita ma. svara við áleitnum spurningum eins og; Er 
Ísland að vanrækja möguleika á samstarfi við alþjóðlegar bankastofnanir?, 
Vantar stjórnvöld stefnu og sýn í okkar öryggismálum?, Hvaða augum líta 
dómarar fyrningu kynferðisafbrota gegn börnum?, Eru 70 ára gömul lög um 
stéttarfélög og vinnudeilur úrelt?, Er það raunverulega rétt að konum 
vegni ver en körlum í prófkjörum stjórnmálaflokka?, Hver er veruleikinn 
varðandi íslenska efnahagsundrið, á hvaða tímabili sögu okkar jókst 
hagsæld mest og hvenær var mestur jöfnuður ríkjandi?, Er ríkið að 
framselja pólitískt vald í of miklum mæli til úrskurðarnefnda?: og loks, 
Hafa skólanefndir framhaldsskóla einhverju hlutverki að gegna eða eru þær 
"silkihúfur" velmeinandi fólks?

Vefritið Stjórnmál og stjórnsýsla er gefið út af Stofnun stjórnsýslufræða 
og stjórnmála og er öllum opið á netinu. Þar birtast ritrýndar 
fræðigreinar, auk almennra greina. Þar er einnig að finna vandaðar 
umsagnir um flestar bækur ársins er varða stjórnmál og samfélagsmál. 

Fræðigreinar í desemberhefti 2008
Private Sector Investments from Small States in Emerging Markets: Can 
International Financial Institutions Help Handle the Risks? höfundur 
Hilmar Þór Hilmarsson dósent við viðskipta- og raunvísindadeild  Háskólans 
á Akureyri; Öryggissjálfsmynd Íslands - Umræða um varnarmála- og 
almannavarnalög á Alþingi vorið 2008, höfundur Silja Bára Ómarsdóttir 
aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands; Viðhorf dómara til 
fyrningar sakar í kynferðisbrotum gegn börnum , höfundur Svala Ísfeld 
Ólafsdóttir, lögfræðingur og sérfræðingur við Háskólann í Reykjavík; 
Vinnulöggjöfin (lög nr. 80/1938) í 70 ár, höfundur Gylfi Dalmann 
Aðalsteinsson  dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands; Framboð eða 
eftirspurn? Árangur kvenna í prófkjörum flokkanna, höfundar Indriði H. 
Indriðason kennari við University of Oxford og dósent við 
stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og Ásdís Jóna Sigurjónsdóttir 
stjórnmálafræðingur og meistaranemi  v. Háskóla Íslands; Íslenska 
efnahagsundrið Frá hagsæld til frjálshyggju og fjármálahruns, höfundur 
Stefán Ólafsson prófessor við Háskóla Íslands
Greinar erindi almenns eðlis í desemberhefti 2008
Fjölgun úrskurðarnefnda - brot á meginreglu um ráðherrastjórnsýslu, 
höfundur Hjördís Finnbogadóttir MPA og Stjórnvald eða silkihúfa - Um 
hlutverk skólanefnda í  íslenskum framhaldsskólum, höfundur Magnús 
Yngvason MPA

Umsagnir um bækur í desemberhefti 2008
Saga af forseta, eftir Guðjón Friðriksson,  Birgir Hermannsson 
stjórnmálafræðingur skrifar um bókina- -
Uppbrot hugmyndakerfis Endurmótun íslenskrar utanríkisstefnu 1991-2007, 
ritstjóri Valur Ingimundarson, margir höfundar, Stefanía Óskarsdóttir 
stjórnmálafræðingur skrifar um bókina -
Afbrot á Íslandi- eftir Helga Gunnlaugsson, Erlendur Baldursson 
afbrotafræðingur skrifar um bókina -
Stjórnun og rekstur félagasamtaka, ritstjórar Ómar H. Kristmundsson og 
Steinunn Hrafnsdóttir, höfundar margir, Haukur Arnþórsson 
stjórnsýslufræðingur skrifar um bókina -
Nýja Ísland, eftir Guðmundur Magnússon, Arnar Másson stjórnmálafræðingur 
skrifar um bókina - 
Með seiglunni hefst það- saga Benedikts Davíðssonar- eftir Haukur 
Sigurðsson, Guðmundur Í. Guðmundsson sagnfræðingur skrifar um bókina-
Ég skal vera Grýla. Margrét Pála Ólafsdóttir í lífsspjalli, eftir  Þórunni 
Hrefnu Sigurjónsdóttur, Auður Styrkársdóttir skrifar um bókina
Óvænt áfall eða fyrirsjáanleg tímamót. brottför bandaríkjahers frá 
Íslandi, eftir Gunnar Þór Bjarnason, Oddný Helgadóttir stjórnmálafræðingur 
skrifar um bókina 
Hvernig ég hertók Höll Saddams, eftir Börk Gunnarsson, Eiríkur Bergmann 
stjórnmálafræðingur skrifar um bókina -
Slæðusviptingar: Raddir íranskra kvenna, eftir Höllu Gunnarsdóttur, Silja 
Bára Ómarsdóttir skrifar um bókina


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20081219/69413a48/attachment.html


More information about the Vid-stund mailing list