[Vid-stund] Þrautir þingsins í fjármálum á þriðjudag

Áshildur Bragadóttir ashildb at hi.is
Thu Jan 18 20:24:43 GMT 2007


Þriðjudaginn 23. janúar mun Vilhjálmur Bjarnason aðjúnkt flytja
fyrirlesturinn Þrautir þingsins í fjármálum í málstofu viðskipta- og
hagfræðideildar Háskóla Íslands. Málstofan er haldin í Odda stofu 101 og
er opin öllum.

Í fyrirlestrinum rekur Vilhjálmur Bjarnason hvernig margar stefnumarkandi
ákvarðanir í peningamálum þjóðarinnar voru teknar án frumkvæðis eða
skilnings stjórnmálamanna.

Hann mun fjalla um feril þeirra breytistærða sem ráða verðlagningunni og
hvernig Alþingi kom þar nærri á stundum en var fjarri á örlagastundu.
Breytistærðirnar sem skipta máli varðandi verðlagninguna eru gengi,
verðtrygging og verðbólga, og vextir. Í þessu sambandi er nærtækt að velta
upp spurningunni hvort Evra verði lögeyrir á Íslandi án þess að Alþingi
taki ákvörðun þar um.



More information about the Vid-stund mailing list