[Vid-stund] Endurskoðendur og opinberi geirinn
Áshildur Bragadóttir
ashildb at hi.is
Mon Feb 26 12:22:11 GMT 2007
Endurskoðendur og opinberi geirinn
Bjarni Frímann Karlsson, lektor viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla
Íslands heldur fyrirlestur í málstofu viðskipta- og hagfræðideildar
Háskóla Íslands þriðjudaginn 27. febrúar kl. 12. 15 í Odda stofu 101.
Fyrirlesturinn er opinn öllum.
Vísbendingar eru á lofti um að starfsemi endurskoðunarstofa sé í dag
sniðinn þrengri stakkur en var fyrir fáeinum árum. Ráðgjafarþátturinn
hefur að mestu leyti flust frá þeim og fyrirtæki verða sífellt meira
sjálfbjarga með reikningsskilavinnuna, ekki síst vegna þess að þau sækjast
mjög eftir að ráða endurskoðendur til starfa. Flest bendir til að þessi
þróun sé eða verði með svipuðum hætti hér á landi sem í nágrannalöndunum.
Endurskoðunarstofur hafa á síðustu árum leitað í æ meira mæli eftir
verkefnum hjá opinbera geiranum. Þar hefur fyrst og fremst verið um
fjárhagsendurskoðun að ræða.
Í fyrirlestrinum verður vakin athygli á því að stjórnsýsluendurskoðun
(SSE) er óaðskiljanlegur hluti af endurskoðun hjá opinberum aðilum.
Endurskoðendur hafa til þessa ekki talið SSE vera í sínum verkahring;
jafnvel litið svo á að hún samrýmist ekki óhæðishugtakinu og eigi því
eingöngu að vera á könnu hins opinbera.
Sýnt verður fram á að þarna gætir misskilnings og að endurskoðendur eigi
einmitt sóknarfæri í gegnum SSE. Því sé mikils um vert fyrir þá að kynna
sér fræðilegan grundvöll hennar og aðferðir.
Fyrirlesturinn gefur eina endurmenntunareiningu í endurskoðun.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20070226/db76158e/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list