[Vid-stund] Fw: Vinsamlegast senda til allra kennara.
Kristín Guðmundsdóttir
kristin at hi.is
Wed Dec 12 13:45:24 GMT 2007
Kristín Guðmundsdóttir, fulltrúi
Viðskipta- og hagfræðideild
Odda/Háskóla Íslands
Sími:525-4500
----- Forwarded by Kristín Guðmundsdóttir/HI/IS on 12.12.2007 13:46 -----
Sólveig Ögmundsdóttir <solveigo at bok.hi.is>
12.12.2007 13:27
To
<oddi at hi.is>
cc
Subject
Vinsamlegast senda til allra kennara.
Bréf til kennara
Ágætu kennarar.
Senn líður að upphafi vormisseris og mun starfsfólk Landsbókasafns Íslands
- Háskólabókasafns, eins og áður, leitast við að breyta lánstíma valinna
rita í samræmi við óskir kennara svo nemendur hafi greiðari aðgang að
þeim. Til þess að bækurnar séu komnar á námsbókasafn þegar nemendur fá
leslista í hendur er mikilvægt að kennarar sendi lista til námsbókasafns
með þeim bókum sem þeir óska eftir að fái skemmri lánstíma sem allra
fyrst. Best væri að fá bókalista senda fyrir áramót en þeir sem það gera
fá tryggingu fyrir því að bækur verði komnar á námsbókasafn við upphaf
kennslu í janúar. Vegna mikilla anna á námsbókasafni við upphaf misseris
getur orðið einhver bið á því að bókalistar sem berast mér eftir áramót
verði afgreiddir.
Þrátt fyrir annir við einkunnaskil væri gott ef þið gæfuð ykkur tíma til
þess að senda upplýsingar um grunnbækurnar sem ætlunin er að nota í
námskeiðum vormisseris eða jafnvel bara upplýsingar um þau námskeið sem
þið viljið að njóti þjónustu námsbókasafns á vormisseri. Það má alltaf
bæta bókum á listana. Ef upplýsingar um námskeið eru þegar til staðar
flýtir það mjög fyrir því að bækurnar komist í hillur.
Á næstu dögum er stefnt að því að taka niður bækur þeirra námskeiða sem nú
eru skráð á námsbókasafni Lbs.-Hbs. á haustmisseri. Vinsamlegast látið
mig vita fyrir 19. desember ef þið viljið að bækur ákveðinna námskeiða
standi áfram í hillu á námsbókasafni.
Með kærri jólakveðju,
Sólveig D. Ögmundsdóttir
umsjónarmaður námsbókasafns Lbs.-Hbs.
namsbok at bok.hi.is
Bestu kveðjur,
Sólveig D. Ögmundsdóttir
umsjónarmaður námsbókasafns Lbs.-Hbs.
netfang: solveigo at bok.hi.is / namsbok at bok.hi.is
sími: 525 5781
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20071212/b33bdae1/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list