[Vid-stund] Minni á málstofuna kl. 12.20 í dag
Ashildur Bragadottir
ashildb at hi.is
Wed Sep 20 09:55:25 GMT 2006
Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor, heldur fyrirlestur um Porter
miðvikudaginn 20. september undir yfirskriftinni "Einn helsti hugsuður heims
- ágrip um Michael E. Porter". Fyrirlesturinn er hluti af málstofuröð
Hagfræðistofnunar og Viðskiptafræðistofnunar og er haldinn kl. 12.20 í Odda
stofu 101.
Í erindinu er sagt frá Michael E. Porter prófessor við Harvard háskóla sem
er viðurkenndur sem einn helsti hugsuður viðskiptalífsins. Einnig verða
helstu verk Porters kynnt og sérstaklega verður fjallað um eitt framlag hans
- samkeppniskraftagreininguna - sem kennd er í viðskiptaháskólum og notuð af
árangursríkum fyrirtækjum víða um heim.
Tilefni fyrirlestrarins er koma Porters hingað til lands þann 2. október
næstkomandi. en í heimsókninni mun Porter halda tvo fyrirlestra, annan um
samkeppnishæfni Íslands og hinn um stefnumótun, ásamt því að taka
við heiðursdoktorsnafnbót við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands.
Allir velkomnir.
Með kærri kveðju,
Áshildur Bragadóttir,
Verkefnastjóri kynningar- og markaðsmála
Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands
s. 525 4536 / 862 9680
ashildb at hi.is
http://www.vidskipti.hi.is
More information about the Vid-stund
mailing list