[Vid-stund] Mágus 60 ára: Kennurum boðið í kaffi

Ashildur Bragadottir ashildb at hi.is
Mon Nov 13 12:59:34 GMT 2006


Frá stjórn Mágusar:

 

Mágus sextugur

 

Nú á árinu verður hið fornfræga og frábæra nemendafélag Mágus sextugt. Í
tilefni af þessum stórviðburði ætlar Mágus að bjóða viðskiptafræðinemum og
kennurum upp á veitingar þriðjudaginn 14. nóvember klukkan 14:00 í
Háskólabíói. Boðið verður upp á risaköku ásamt mjólkurglasi eða kaffi til að
skola kökunni niður. Einnig verður hægt skyggnast örlítið aftur í tímann,
því á staðnum verða albúm með gömlum myndum og gamlir bæklingar gefnir út af
Mágusi.

 

Mágus ætlar einnig að gera gott betur því miðvikudaginn 15. nóvember mun
Rebbi gamli taka sig til og bjóða öllum mágusarmeðlimum í bíó á Borat, eina
umtöluðustu mynd dagsins í dag. Kennurum er að sjálfsögðu einnig velkomið að
mæta í Kringlubíó klukkan 19:45 og heiðra refinn með nærveru sinni. 

 

Til hamingju með afmælið Mágus!

 

 

 

 

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20061113/8ce41796/attachment.html


More information about the Vid-stund mailing list