[Vid-stund] Ráðstefna VI um rannsóknir í félagsvísindum í haust

Kristín Klara Einarsdóttir kke at hi.is
Wed May 4 22:55:28 BST 2005


Sæl öll.
Friðrik H. Jónsson bað mig um að senda ykkur þetta bréf:

Viltu flytja fyrirlestur á Ráðstefnu VI um rannsóknir í félagsvísindum?

Ráðstefnan Rannsóknir í félagsvísindum VI verður haldin föstudaginn 28.
október 2005. Að ráðstefnunni standa viðskipta- og hagfræðideild,
félagsvísindadeild og lagadeild. Vakin er athygli á því að ráðstefnan
stendur aðeins í einn dag. Fyrirlestrar á rástefnunni verða gefnir út í
ráðstefnuritum sem koma út á ráðstefnudaginn. Aðeins þeir sem gefa út
fyrirlestur sinn í viðkomandi ráðstefnuriti tala á ráðstefnunni.

Allir sem starfa á fræðasviðum þeirra deilda sem standa að ráðstefnunni 
eiga
kost á að flytja fyrirlestur á ráðstefnunni. Þeir sem áhuga hafa á því 
skulu
senda útdrátt (abstract) til stjórnanda ráðstefnunnar, Friðriks H.
Jónssonar, dósents (fhj at hi.is) fyrir 15. maí 2005. Útdrátturinn á að vera
300 til 400 orð að lengd þar sem reifað er megininntak fyrirlestrarins. 
Þann
31. maí liggur fyrir hvaða fyrirlestrar hafa verið samþykktir til 
flutnings.
Skila á inn fyrirlestri sem tilbúinn er til birtingar í ráðstefnuriti 
fyrir
15. ágúst 2005.

Allar nánari upplýsingar um ráðstefnuna veitir Friðrik H. Jónsson
(fhj at hi.is)

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20050504/47147deb/attachment.html


More information about the Vid-stund mailing list