[Vid-stund] Hádegisfundur SÍNE 3.mars
Ashildur Bragadottir
ashildb at hi.is
Mon Feb 28 14:03:15 GMT 2005
Fundur um fjármögnun náms og stefnumörkun LÍN 3.mars 2005
Samband íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE) stendur fyrir opnum
hádegisfundi í Þjóðminjasafni Íslands um fjármögnun náms fimmtudaginn
3.mars n.k. Á fundinum verður m.a. rætt um Lánasjóð íslenskra námsmanna
sem öflugt stjórntæki í mannauðsuppbyggingu þjóðarinnar.
Markmiðið með fundinum er að kalla eftir stefnu ríkisins í málefnum LÍN,
þar sem velt verður upp spurningum um það hvort sjóðnum sé stjórnað
stefnumiðað - þá með hvaða hætti sú stefna er mörkuð, og ekki síður
hvernig hún ætti að vera mörkuð.
Á fundinum taka til máls:
* Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands
* Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar
Háskóla Íslands
* Gunnar I Birgisson, alþingismaður / Steingrímur Ari
Arason, framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna
* Fundarstjóri verður Ágúst Einarsson, prófessor við
viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, sem stýrir umræðum í lok fundar.
Fundurinn, sem er opinn öllum, hefst klukkan 12.00 og stendur í um
klukkustund. Boðið verður upp á léttar veitingar að honum loknum.
Með góðri kveðju,
Samband íslenskra námsmanna erlendis
www.sine.is / sine at sine.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20050228/a4c321dd/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list