[Vid-stund] Málstofa: Efnahagsleg áhrif verðbólgumarkmiðs

Ashildur Bragadottir ashildb at hi.is
Wed Apr 13 09:51:05 BST 2005


„Efnahagsleg áhrif verðbólgumarkmiðs”
Málstofa miðvikudaginn 13. apríl 
kl. 12:20 í Öskju stofu 132
 
Þórarinn G. Pétursson, staðgengill aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands og
lektor í Háskólanum í Reykjavík, flytur erindið "Efnahagsleg áhrif
verðbólgumarkmiðs" í málstofu Hagfræðistofnunar og
Viðskiptafræðistofnunar miðvikudaginn 13. apríl, kl. 12.20, í Öskju
stofu 132 (nýja Náttúruvísindahúsinu í Vatnsmýrinni)
Frá því að Nýja-Sjáland tók fyrst upp verðbólgumarkmið snemma árs 1990
hefur fjöldi landa sem miða ramma peningastefnu sinnar við formlegt
verðbólgumarkmið aukist hratt og eru löndin nú orðin 21 og eru í öllum
heimsálfum. 
Í þessari málstofu er fjallað um áhrif upptöku verðbólgumarkmiðs á
helstu hagstærðir og er niðurstaðan sú að upptaka verðbólgumarkmiðs hafi
í meginatriðum heppnast vel og skilað þeim árangri sem að var stefnt.
Hinn nýi rammi hefur gert seðlabönkum, sem áður höfðu lítinn
trúverðugleika, kleift að færa peningastefnu sína í átt að því sem best
gerist og hafa þeir jafnvel verið leiðandi í því að skapa ný viðmið um
hvað telst vera best í framkvæmd peningastefnu.
Allir velkomnir.
 
Með kærri kveðju,
Áshildur Bragadóttir, 
Verkefnastjóri kynningarmála 
Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands
s. 525 4536 / 862 9680
ashildb at hi.is
http://www.vidskipti.hi.is
 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20050413/51cb1e4e/attachment.html


More information about the Vid-stund mailing list