[Vid-stund] kynningarfundur með alþjóðabanka - Doing Business
Ashildur Bragadottir
ashildb at hi.is
Fri Apr 8 09:56:14 BST 2005
Vinsamlegast áframsendið til aðila sem kunna að hafa áhuga þessum
kynningarfundi.
************************************************************************
*****************************
Mánudaginn 11. apríl, kl. 13:00 -14:30 heldur viðskiptaþjónusta
utanríkisráðuneytisins og Verslunarráð Íslands ásamt Alþjóðabankanum
lokaðan kynningarfund um "Doing Business"
"Doing Business" er skýrsla sem gefin er út af Alþjóðabankanum og gerir
góð
skil á viðskiptaumhverfi 145 ríkja víða um heim. Úttektin er gerð á
mikilvægum þáttum í viðskiptaumhverfi viðkomandi ríkja og tekur mið af
lagalegu umhverfi og áhrifum þess á viðskiptalífið.
Upplýsingarnar nýtast því vel m.a. í því skyni að geta borið aðstæður
saman
í hinum ýmsu ríkjum og eru jafnframt gagnlegt tæki fyrir fjárfesta. Þá
hafa
upplýsingarnar einnig verið nýttar af þróunarstofununm hinna þróðari
ríkja
í því skyni að átta sig á því hvaða tæki, lög og reglur eru
"útflutningshæfar" í starfi þeirra á sviði þróunar einkageirans (Private
Sector Development) í þeirra samstarfslöndum.
Á fundinum mun Simeon Djankov, framkvæmdastjóri greiningardeildar
Alþjóðabankans, segja frá því hvernig Ísland kemur út í samanburði við
aðrar þjóðir. Þá mun Stefán Þórarinsson, stjórnarformaður Nýsis hf.,
gera
grein fyrir fjárfestingatækifærum í Afríku.
Umfjöllunin á fundinum mun einkum beinast að fjárfestingartækifærum í
þróunarlöndum Afríku, suð-austur Evrópu og Latínameríku.
Fundurinn verður haldinn í utanríkisráðuneytinu, Rauðarárstíg 25,
mánudaginn 11. apríl nk. kl. 13:00 - 14:30 og fundarstjóri verður Júlíus
Hafstein, skrifstofustjóri á skrifstofu ferðamála og viðskiptaþjónustu
utanríkisráðuneytis.
DAGSKRÁ:
13:00 Ávarp Júlíus Hafstein - skrifstofustjóri á skrifstofu
ferðamála og viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytis
13:05 Simeon Djankov - Manager Monitoring, Analysis and Policy Unit,
Worldbank
· Overview of the main findings of the 2005 Doing
Business Report
· Background on methodology and indicators
· Opportunities and implications of regulatory reforms
· Presentation of initial results for Iceland
Q&A followed by discussions:
· What conclusions can policy makers draw from the
report's analysis?
· How can these results be incorporated into reform programs
with partner countries within Development cooperation?
13:45 Stefán Þórarinsson - Stjórnarformaður Nýsir hf.
· Case presentation: "Investment opportunities in Africa"
14:05 Q&A
14:30 Fundi slitið
Þess er vinsamlega óskað að tilkynnt sé um þátttöku eigi síðar en á
hádegi
föstudaginn 8. apríl í tölvupósti (sbk at mfa.is) eða í síma: 545 9930
Það skal tekið fram að þetta er lokaður fundur og áherslur í
umfjöllunarefni aðrar en á opna fundinum á Grand Hótel Reykjavík,
þriðjud
12. apríl (sjá viðhengi).(See attached file: VÍ_morgun120405(3dx13).pdf)
Með bestu kveðju
Stella
===================================
Stella Björg Kristinsdóttir
Verkefnastjóri
Viðskiptaþjónusta Utanríkisráðuneytisins
Rauðarárstígur 25
150 Reykjavík
e-mail: sbk at mfa.is
tel: + 354 545 9930
fax: + 354 562 4878
===================================
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: =?iso-8859-1?Q?V=CD=5Fmorgun120405=283dx13=29.pdf?=
Type: application/pdf
Size: 517219 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20050408/c40eea08/iso-8859-1QVCD5Fmorgun120405283dx1329-0001.pdf
More information about the Vid-stund
mailing list