[HFR-keppendur] Sam-hjól á sunnudaginn 7. mars frá brú kl: 9:50. Allir velkomnir
Albert Jakobsson
aj at hi.is
Thu Mar 4 23:31:50 GMT 2010
Sam-hjól á sunnudaginn frá brú kl: 9:50
Það hefur verð talað um það um nokkurt skeið að gaman væri að félögin og
klúbbar myndu hjóla saman fyrsta sunnudag hvers mánaðar. Næstkomandi
sunnudag 7. mars förum við fyrstu ferð.
Lagt verður af stað frá gömlu brúnni í Elliðarárdal skammt frá Árbæjarlaug
kl. 9:50. Hjólað sem leið liggur upp Víðidal, gegnum Norðlingaholt upp í
gegnum Heiðmörk. Silungapollsveg út á Suðurlandsveg yfir á
Nesjavallaafleggjara, Hafravatnsleið að Skyggni til hægri niður í Mosfellsbæ
og út að strönd og meðfram ströndinni vestur eftir.
Á þessari leið getur fólk valið vegalengdir eftir getu. Auðvelt er að hoppa
af lestinni við Nesjavallaafleggjara og hjóla í átt að Rauðavatni, næst við
Skyggni og hjóla niður í Grafarholt.
Sjá kort af <http://notendur.hi.is/~aj/mynd/kort/sam-hjol-kort.jpg> leið.
Sjá kort hvar við <http://notendur.hi.is/~aj/mynd/kort/Hittingur.jpg>
hittumst.
Ef veður breytist til hins verra miðað við núverandi spá skoðum við
leiðarval á upphafsreit.
Kveðja
Albert
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/hfr-keppendur/attachments/20100304/87abe3f7/attachment.html
More information about the Hfr-keppendur
mailing list