[HFR-keppendur] Fyrsta fjallahjólamót sumarsins við Rauðavatn 27. apríl 2010

Albert Jakobsson aj at hi.is
Sat Apr 24 16:16:33 GMT 2010


Fyrsta fjallahjólamót sumarsins við Rauðavatn 27. apríl 2010 

 

http://www.hfr.is/img/frettir/0424_1610_29_1.jpg
Hjólreiðafélag Reykjavíkur heldur fyrsta fjallahjólamót sumarsins við
Rauðavatn þriðjudaginn 27. apríl 2010.
Rásmark er á hefðbundnum stað austan megin við Rauðavatn (
<http://www.hfr.is/images/kort/kortraudavatn.jpg> sjá kort) og við
skógarlundinn ( <http://www.hfr.is/images/kort/skogurraudavatn.jpg> sjá kort
af skóarlundi). Keppnin hefst kl. 19:00. Brautin sem keppendur hjóla er
blanda af malarstígum, grasi og skógarlundsstígum. Brautin er 5.3 km og með
heildarhækkun upp á 70 metra (
<http://www.hfr.is/images/kort/profileraudavatn.jpg> sjá mynd).

Boðið verður upp á B flokka.
Aldurskipting í b flokki er 39 ára og yngri, 40 ára og eldri.
( B -  FLOKKUR karla og kvenna - eru þeir sem hafa gaman af að hjóla en hafa
ekki verið að keppa í stærri keppnum innan ÍSÍ. )
B flokkur karla og kvenna hjólar 2 hringi.

Keppt er í eftirtöldum flokkum karla og kvenna og hefst kl. 19:00
Aldur                      Karlar             konur
15-16 ára                2 hringir         2 hringir
17-18 ára                4 hringir         4 hringir
Meistaraflokkur      4 hringir         4 hringir
H-30+                     4 hringir         4 hringir
H-40+                     4 hringir         4 hringir
H-50+                     4 hringir         4 hringir 

Keppnisgjald er kr. 1500 ef skáning fer fram fyrir kl. 13:00 mánudaginn 26.
apríl og 
email sent á hfr at vortex.is  með staðfestingu um greiðslu. 

Fyrir félagsmenn HFR sem hafa greitt árgjald fyrir árið 2010 er keppnisgjald
kr. 1000.
ATH: Keppnisgjald hækkar í kr. 2.500 fyrir alla, ef keppandi skráir sig
eftir 
kl. 13.00 mánudaginn 26. apríl.

Leiðbeiningar um skráningu:
Skráning; senda email á hfr at vortex.is  með nafni, kennitölu og flokk ásamt
því að senda greiðslukvittun úr heimabanka.

Kennitala Hjólreiðafélags Reykjavíkur er: 430194-2089
Reikningsnúmer: 130-26-412089 (Landsbankinn í Smáralind)

Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppnum HFR. Hjálmaskylda er í öllum keppnum
HFR.

 

 

Með kveðju

Albert Jakobsson

       __ o

     _-\<,_

....(_)/ (_).....

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/hfr-keppendur/attachments/20100424/ae09e939/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 122337 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/hfr-keppendur/attachments/20100424/ae09e939/attachment-0001.jpe 


More information about the Hfr-keppendur mailing list