[HFR-keppendur] Æfingar-Racerkeppni
Albert Jakobsson
aj at hi.is
Fri Jul 14 00:41:16 GMT 2006
Sælir
Það kom upp sú hugmynd að vera með æfingar-Racerkeppni. Hér er pósturinn
sem Pálmar áfram sendi mér.
Hverjir koma til greina.
Árni, Steinar, Haukur, Hákon, Gummi, Hlöðver, Daníel, Einar Már, Pálmar,
Klein og Scott gaurinn í Markinu, Elfar Rúnarsson, Anton, Rúnar, Gísli,
Helgi, Tómas, Oggi. Það eru eflaust einhverjir sem ég gleymi
Með kveðju
Albert Jakobsson
Hæ
Komin er upp sú hugmynd að bæta við einu móti í götuhjólreiðum þegar stóru
strákarnir fara til Færeyja. Langt gat er í keppnistímabilinu fyrir þá sem
fara ekkert erlendis til keppnisferða þar sem júlí mánuður er nánast
fullbókaður í keppnum erlendis.
Því hef ég komið með þá hugmynd að halda eins konar æfingakeppni þar sem
markmiðið er fyrst og fremst að æfa okkur að hjóla í hóp, að skilja hvað
hópurinn getur gert fyrir okkur og vonandi skilar þessi hópur sér síðar í
eina af þessum stóru keppnum.
T.d. væri sterkur leikur að halda þessa keppni á sömu leið og
Íslandsmeistaramótið fer fram á og þannig gætum við vanist vegalengdinni og
aðstæðum.
Þá er það sjálf keppnin:
Keppt yrði í liðakeppni, 3 saman í liði og tíminn tekinn á þriðja liðsmanni
í mark. Þannig þarf hver þriggja manna hópur að vinna saman alla leið í
mark.
Ég mæli með Hvalfirðinum, 15 km spotti sem hjólaður er 2 x fram og til baka
samtals 60 km, byrjað við Ristarbrú. Sama leið og var notuð í
Ísland-Færeyjar síðastliðið haust.
Mér þætti vænt um að þeir sem hafa áhuga á að taka þátt myndu hafa samband
sem fyrst til þess að athuga hvort grundvöllur sé fyrir keppninni og
skipulagning geti hafist sem fyrst.
kveðja
Elvar Örn
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/hfr-keppendur/attachments/20060714/3f96e648/attachment.html
More information about the Hfr-keppendur
mailing list