<html xmlns:v="urn:schemas-microsoft-com:vml" xmlns:o="urn:schemas-microsoft-com:office:office" xmlns:w="urn:schemas-microsoft-com:office:word" xmlns:m="http://schemas.microsoft.com/office/2004/12/omml" xmlns="http://www.w3.org/TR/REC-html40">
<head>
<meta http-equiv="Content-Type" content="text/html; charset=iso-8859-1">
<meta name="Generator" content="Microsoft Word 15 (filtered medium)">
<!--[if !mso]><style>v\:* {behavior:url(#default#VML);}
o\:* {behavior:url(#default#VML);}
w\:* {behavior:url(#default#VML);}
.shape {behavior:url(#default#VML);}
</style><![endif]--><style><!--
/* Font Definitions */
@font-face
{font-family:"Cambria Math";
panose-1:2 4 5 3 5 4 6 3 2 4;}
@font-face
{font-family:Calibri;
panose-1:2 15 5 2 2 2 4 3 2 4;}
/* Style Definitions */
p.MsoNormal, li.MsoNormal, div.MsoNormal
{margin:0cm;
margin-bottom:.0001pt;
font-size:11.0pt;
font-family:"Calibri",sans-serif;
mso-fareast-language:EN-US;}
a:link, span.MsoHyperlink
{mso-style-priority:99;
color:#0563C1;
text-decoration:underline;}
a:visited, span.MsoHyperlinkFollowed
{mso-style-priority:99;
color:#954F72;
text-decoration:underline;}
span.EmailStyle17
{mso-style-type:personal-compose;
font-family:"Calibri",sans-serif;
color:windowtext;}
.MsoChpDefault
{mso-style-type:export-only;
font-family:"Calibri",sans-serif;
mso-fareast-language:EN-US;}
@page WordSection1
{size:612.0pt 792.0pt;
margin:70.85pt 70.85pt 70.85pt 70.85pt;}
div.WordSection1
{page:WordSection1;}
--></style><!--[if gte mso 9]><xml>
<o:shapedefaults v:ext="edit" spidmax="1026" />
</xml><![endif]--><!--[if gte mso 9]><xml>
<o:shapelayout v:ext="edit">
<o:idmap v:ext="edit" data="1" />
</o:shapelayout></xml><![endif]-->
</head>
<body lang="IS" link="#0563C1" vlink="#954F72">
<div class="WordSection1">
<p class="MsoNormal"><i>Nú er að koma að því. Matvælastofnun minnir á ársfund sinn nk þriðjudag. Opið er fyrir skráningar til og með næsta mánudag.
<o:p></o:p></i></p>
<p class="MsoNormal"><o:p> </o:p></p>
<p class="MsoNormal"><span style="font-size:14.0pt">Ársfundur MAST 2016: Hagur neytenda<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><o:p> </o:p></p>
<p class="MsoNormal">Matvælastofnun heldur ársfund sinn <b>þriðjudaginn 5. apríl</b> nk. kl. 13:00 - 16:40 á Hótel Reykjavík Natura (Loftleiðum). Viðfangsefnið að þessu sinni verður hagur neytenda. Dagskrá snýr jafnt að neytendum og framleiðendum matvæla þar
sem rætt verður hvernig við tryggjum hag neytenda þegar kemur að öryggi matvæla og upplýsingagjöf um þau.
<o:p></o:p></p>
<p class="MsoNormal"><o:p> </o:p></p>
<p class="MsoNormal">Miklar framfarir hafa orðið í neytendamálum að undanförnu. Með tilkomu Skráargatsins og nýrrar reglugerðar um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda munu þeir hafa aðgang að hnitmiðaðri upplýsingum um eðli og innihald þeirra matvara
sem þeir neyta. Nýja upplýsingareglugerðin og Skráargatið verða til umfjöllunar á fundinum, ásamt upplýsingastefnu Matvælastofnunar og fyrirhugaðri fésbókarsíðu tileinkaðri hagsmunum neytenda. Einnig verður fjallað um hvenær og hvernig matvæli eru innkölluð
af markaði og hvaða reglur gilda um plast og aðrar umbúðir í snertingu við matvæli. Þá verður frammistöðuflokkun Matvælastofnunar kynnt og hvernig upplýsa megi neytendur um það hvernig matvælaframleiðendur standa sig.
<o:p></o:p></p>
<p class="MsoNormal"><o:p> </o:p></p>
<p class="MsoNormal">Á ársfundinum verða jafnframt kynntar <b>nýjar niðurstöður mælinga</b> Matvælastofnunar á ýmsum efnum í matvælum s.s. salti og transfitusýrum í matvælum; nítríti og saltpétri í kjöti; og þungmálmum, histamíni og PAH-efnum og listeríu í
dýraafurðum. Farið verður yfir niðurstöður mælinga á illgresiseyðum og skordýraeitri í grænmeti og ávöxtum og lyfjaleifum í dýraafurðum. Sýklalyfjaþol baktería er vaxandi vandamál á heimsvísu. Á ársfundinum verður einnig farið yfir stöðuna á Íslandi hvað varðar
sýklalyfjanotkun og lyfjaþol. <o:p></o:p></p>
<p class="MsoNormal"><o:p> </o:p></p>
<p class="MsoNormal">Nauðsynlegt er að skrá sig á ársfundinn. <b>Skráning</b> fer fram á netfanginu
<b><a href="mailto:mast@mast.is">mast@mast.is</a></b> og verður opið fyrir skráningar til
<b>4. apríl</b>. Vinsamlega tilgreinið nafn, fyrirtæki/samtök/stofnun og netfang við skráningu.<o:p></o:p></p>
<p class="MsoNormal"><o:p> </o:p></p>
<p class="MsoNormal">Ársfundurinn er <b>öllum opinn</b> og þátttakendum að kostnaðarlausu. Matvælastofnun hvetur alla þá sem láta neytendamál sig varða, neytendur jafnt sem framleiðendur, að mæta og leggja orð í belg. Boðið verður upp á gagnvirkar umræður í
lok fundar. Fundarstjóri er Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður, og er dagskrá aðgengileg hér að neðan.
<o:p></o:p></p>
<p class="MsoNormal"><o:p> </o:p></p>
<p class="MsoNormal">Ársfundur MAST 2016: Hagur neytenda – dagskrá:<o:p></o:p></p>
<p class="MsoNormal"><a href="http://www.mast.is/library/Upplysingar/ArsfundurMAST2016_Dagskra.pdf">http://www.mast.is/library/Upplysingar/ArsfundurMAST2016_Dagskra.pdf</a><o:p></o:p></p>
<p class="MsoNormal"><o:p> </o:p></p>
<p class="MsoNormal"><span style="mso-fareast-language:IS">Með kveðju,<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="mso-fareast-language:IS">Hjalti Andrason<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="mso-fareast-language:IS"><o:p> </o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="mso-fareast-language:IS">Fræðslustjóri / Head of Information and Communication<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="mso-fareast-language:IS">Rekstrar- og mannauðssvið / Office of Administration<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="mso-fareast-language:IS">_____________________________________________________<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal" style="margin-top:6.0pt"><span style="mso-fareast-language:IS"><img border="0" width="160" height="68" style="width:1.6666in;height:.7083in" id="Picture_x0020_5" src="cid:image001.jpg@01D18BF1.EF53F0D0" alt="cid:image001.jpg@01D138EE.6011DB90"><o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal" style="margin-top:4.0pt"><span style="mso-fareast-language:IS">Matvælastofnun / Icelandic Food and Veterinary Authority
<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="mso-fareast-language:IS">Austurvegur 64 – 800 Selfoss – Iceland<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="mso-fareast-language:IS">Sími/tel: (+354) 530 4800 – Fax : (+354) 530 4801 –
<a href="www.mast.is">www.mast.is</a><o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><span style="mso-fareast-language:IS">_____________________________________________________<o:p></o:p></span></p>
<p class="MsoNormal"><o:p> </o:p></p>
<p class="MsoNormal"><o:p> </o:p></p>
</div>
</body>
</html>