<!DOCTYPE HTML PUBLIC "-//W3C//DTD HTML 3.2//EN">
<HTML>
<HEAD>
<META HTTP-EQUIV="Content-Type" CONTENT="text/html; charset=iso-8859-1">
<META NAME="Generator" CONTENT="MS Exchange Server version 6.5.6944.0">
<TITLE>Doktorsvörn í líffræði frá raunvísindadeild nk. mánudag 20. des. kl. 13:00 í Hátíðarsal HÍ</TITLE>
</HEAD>
<BODY>
<!-- Converted from text/rtf format -->
<BR>

<P><FONT SIZE=2 FACE="Courier New">Doktorsvörn í líffræði frá raunvísindadeild Háskóla Íslands Aðgengi að fjölbreytileika hitakærra örvera og gena þeirra með sérstökum auðgunaraðferðum Mánudaginn 20. desember fer fram doktorsvörn við raunvísindadeild Háskóla Íslands. Þá ver Cédric F.V. Hobel MSc. Biotech doktorsritgerð sína ?Access to Biodiversity and New Genes from Thermophiles by Special Enrichment Methods? (Aðgengi að fjölbreytileika hitakærra örvera og gena þeirra með sérstökum auðgunaraðferðum). Andmælendur verða Dr. Joel Querellou forstöðumaður hjá IFREMER Brest og Dr. Guðni Á Alfreðsson prófessor við Háskóla Íslands. Athöfnin hefst kl. 13:00 í Hátíðasal Háskóla Íslands, Aðalbyggingu og er öllum opin. Dr. Hörður Filippusson forseti raunvísindadeildar stjórnar athöfninni.</FONT></P>

<P><FONT SIZE=2 FACE="Courier New">Leiðbeinendur við doktorsverkefnið eru Dr. Jakob K. Kristjánsson forstjóri Prokaria og Dr. Viggó Þór Marteinsson, Prokaria.&nbsp; Í doktorsnefnd situr ásamt leiðbeinendum Dr. Guðmundur Óli Hreggviðsson dósent við HÍ.&nbsp; </FONT></P>

<P><FONT SIZE=2 FACE="Courier New">Verkefnið var unnið á rannsóknastofu Prokaria.</FONT>
</P>

<P><FONT SIZE=2 FACE="Courier New">Almennt er talið að einungis sé hægt að rækta og einangra&nbsp; minna en 1% af öllum örverum sem eru til staðar í náttúrunni.&nbsp; Til að nálgast þau 99% sem eftir eru verður að nota sameindalíffræðilegar aðferðir og auka fjölbreytni í sýnatöku en doktorsverkefnið fjallar meðal annars um þetta. </FONT></P>

<P><FONT SIZE=2 FACE="Courier New">Verkefninu má skipta í þrjá hluta. Í fyrsta hluta er fjallað um örverufjölbreytileika í tveimur heitum jaðarvistkerfum (Extreme environments).&nbsp; Erfðagreiningar voru gerðar á sýnum úr jarðhitaborholum og á sýnum sem voru tekin við neðansjávarhveri á 400 m dýpi við Grímsey. Í báðum tilvikum sýndu niðurstöður fram á&nbsp; mikinn örverufjölbreytileika og tilvist nýrra hitakærra örvera.&nbsp; Í öðrum hluta verkefnisins voru nýjar ræktunaraðferðir notaðar til að auðga fyrir örverum með sértæka eiginleika. Auðgað var fyrir örverum sem brjóta niður sterkju í brennisteinsríkum hver. Með því að skima ræktirnar með sértækum kjarnsýruþreifurum tókst að einangra kjarnsýruraðir 18 nýrra sterkjuensím-gena en aðeins eitt þerra kom fram í örveruþekjum sem mynda megin lífmassa hversins. Blönduð aðferðafræði var notuð til að skoða fjölbreytileika&nbsp; kítínasagena í örverum sem lifa í strandhverum þar sem sjávarfalla gætir við Reykjanes í Ísafjarðardjúpi. Unnt var að einangra 36 ný kítínasagen úr auðgunum og örveruþekjum. Niðurstöðurnar sýndu fram á að hægt sé að veiða út ný og verðmæt gen úr náttúrunni með markvissum auðgunum sem byggja á samþættingu&nbsp; ?in vitro? og ?in situ? aðferða. Í lokahluta verkefnisins var genamengi hitakæru sjávarbakteríunnar Rhodothermus marinus skimað fyrir kítínasageni. Genið var síðan einangrað, klónað og tjáð og genaafurðin hreinsuð. Ensímið reyndist vera hitastöðugast allra kítínasa sem hafa fundist í raunbakteríum og geta breytt kítínfjölliðum í tvíliður. Doktorsritgerðin byggir á&nbsp; safni fimm greina sem hafa verið birtar eða bíða birtingar í alþjóðlegum, ritrýndum tímaritum á sviði örverufræða eða líftækni. Einnig voru niðurstöðurnar grundvöllur að einni einkaleyfisumsóknar. </FONT></P>

<P><FONT SIZE=2 FACE="Courier New">Cédric F.V. Hobel (franskur, f. 1977) lauk stúdentsprófi&nbsp; (Baccalaureat) frá Lycée Bartholdi í Colmar 1994, próf í lífefnafræði frá University Louis Pasteur, Strasbourg, 1996 og M.Sc. prófi í líftækni/frumu- og sameindalíffræði frá&nbsp; European School for Biotechnology of Strasbourg, 1999. Foreldrar Cédrics eru Yvan og Marie-Reine Hobel, sem búa í Kientzheim, Frakklandi.</FONT></P>
<BR>
<BR>
<BR>

<P><FONT SIZE=2 FACE="Courier New">********************************</FONT>

<BR><FONT SIZE=2 FACE="Courier New">Með góðri kveðju,</FONT>
</P>

<P><FONT SIZE=2 FACE="Courier New">Jónína Helga Þórólfsdóttir</FONT>

<BR><FONT SIZE=2 FACE="Courier New">Verkefnastjóri</FONT>

<BR><FONT SIZE=2 FACE="Courier New">Markaðs- og samskiptadeild</FONT>

<BR><FONT SIZE=2 FACE="Courier New">Háskóli Íslands v/Suðurgötu</FONT>

<BR><FONT SIZE=2 FACE="Courier New">Sími: 525 4207 / 898 4451</FONT>

<BR><FONT SIZE=2 FACE="Courier New">joninath@hi.is</FONT>

<BR><FONT SIZE=2 FACE="Courier New">_______________________________________________</FONT>

<BR><FONT SIZE=2 FACE="Courier New">Hi-starf mailing list</FONT>

<BR><FONT SIZE=2 FACE="Courier New">Hi-starf@hi.is</FONT>

<BR><A HREF="http://listar.hi.is/mailman/listinfo/hi-starf"><U><FONT COLOR="#0000FF" SIZE=2 FACE="Courier New">http://listar.hi.is/mailman/listinfo/hi-starf</FONT></U></A>
</P>
<BR>
<BR>
<BR>
<BR>

</BODY>
</HTML>