<!DOCTYPE HTML PUBLIC "-//W3C//DTD HTML 3.2//EN">
<HTML>
<HEAD>
<META HTTP-EQUIV="Content-Type" CONTENT="text/html; charset=iso-8859-1">
<META NAME="Generator" CONTENT="MS Exchange Server version 6.5.6944.0">
<TITLE>Doktorsvörn í líffræði frá raunvísindadeild 14. des. nk kl. 14:00 í Hátíðarsal Aðalbyggingu</TITLE>
</HEAD>
<BODY>
<!-- Converted from text/rtf format -->
<BR>
<P><SPAN LANG="fr"><B><FONT SIZE=2 FACE="sans-serif">Hitaþolin ensím í sameindalíffræði og erfðagreiningum.</FONT></B><FONT FACE="Times New Roman"><BR>
<BR>
<U></U></FONT><U><FONT SIZE=2 FACE="sans-serif">Doktorsvörn í líffræði frá raunvísindadeild Háskóla Íslands</FONT></U><FONT FACE="Times New Roman"><BR>
<BR>
</FONT><FONT SIZE=2 FACE="sans-serif">Þriðjudaginn 14. desember fer fram doktorsvörn við raunvísindadeild Háskóla Íslands. Þá ver Þórarinn Blöndal líffræðingur doktorsritgerð sína “Thermostable enzymes in molecular biology and diagnostics: RNA ligases and polynucleotide kinase from thermophilic phages and novel approaches for SNP genotyping“ (Hitaþolin ensím í sameindalíffræði og erfðagreiningum: RNA lígasar og fjölkirna kínasi úr hitakærum veirum og nýjar aðferðir við arfgerðagreiningar einkirnabreytinga). Andmælendur verða Dr. Francine Perler, Senior Scientist frá New England Biolabs Inc. og Dr. Ólafur S. Andrésson prófessor við Háskóla Íslands. Athöfnin hefst kl:14:00 í Hátíðarsal Háskóla Íslands, Aðalbyggingu og er öllum opin. Dr. Hörður Filippusson forseti raunvísindadeildar stjórnar athöfninni.</FONT><FONT FACE="Times New Roman"><BR>
<BR>
</FONT><FONT SIZE=2 FACE="sans-serif">Í doktorsnefnd sitja Dr. Jakob K. Kristjánsson forstjóri Prokaria, Dr. Albert Vernon Smith, GenThor ehf og Guðmundur Eggertsson prófessor emeritus frá Háskóla Íslands. Verkefnið var samstarfsverkefni Íslenskrar erfðagreiningar og Prokaria og unnið á rannsóknastofum fyritækjanna. Verkefnið var tvíþætt. Annars vegar að rannsaka fjölkirna kínasa/RNA lígasa ensím úr hitakærum veirum, skilgreina þau og kanna nýtingu þeirra til rannsókna í sameindalíffræði. Voru þrjú hitaþolin ensím einangruð og skilgreind og reyndust tvö þeirra nýtast vel til notkunar í sameindalíffræðirannsóknum. Hins vegar voru þróaðar nýjar aðferðir til arfgerðagreininga á einkirnabreytingum í mannerfðafræði með massagreini (MALDI-TOF) sem greiningaraðferð. Tvær nýjar aðferðir voru þróaðar sem aukið geta skilvirkni og minnkað kostnað við slíkar erfðarannsóknir. Niðurstöður verkefnanna sem eru lögð fram í doktorsritgerðinni er safn fimm greina sem hafa verið birtar eða bíða birtingar í alþjóðlegum tímaritum á sviði sameindalíffræði. Einnig voru niðurstöðurnar grundvöllur fjögurra einkaleyfisumsókna og hafa tvær afurðir verið markaðssettar til nota í sameindalíffræði á vegum Prokaria.</FONT><FONT FACE="Times New Roman"><BR>
<BR>
</FONT><FONT SIZE=2 FACE="sans-serif">Þórarinn Blöndal (f. 1971) lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1991, BSc. prófi í líffræði frá Háskóla Íslands 1995 og MSc.prófi í sameindaerfðafræði frá Háskóla Íslands 1998. Foreldrar Þórarins eru Sveinbjörn Blöndal og Borghildur Garðarsdóttir. Þórarinn er kvæntur Veru Guðmundsdóttur, líffræðingi og eiga þau þrjú börn.</FONT><FONT FACE="Times New Roman"><BR>
<BR>
<BR>
<BR>
<BR>
</FONT><FONT SIZE=2 FACE="sans-serif">************************************<BR>
Með kveðju<BR>
Björk Håkansson, verkefnastjóri<BR>
Markaðs- og samskiptadeild<BR>
s.525 4207 / 863 9367<BR>
Háskóli Íslands v. Suðurgötu<BR>
</FONT></SPAN><A HREF="http://www.hi.is"><SPAN LANG="fr"><U><FONT COLOR="#0000FF" SIZE=2 FACE="sans-serif">http://www.hi.is</FONT></U></SPAN></A><SPAN LANG="fr"><FONT FACE="Times New Roman"> </FONT></SPAN>
</P>
</BODY>
</HTML>