[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Smitandi æxlisfrumur í ljósi þróunar.
Birkir Þór
birkirbr at hi.is
Tue Feb 20 09:11:00 GMT 2018
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar
til ykkar fólks.
*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*
Fyrirlesari: *Sigurður Ingvarsson*, prófessor og forstöðumaður á Keldum.
Heiti erindis: *Smitandi æxlisfrumur í ljósi þróunar.*
Erindið verður haldið _fimmtudaginn 22. febrúar kl. 12:20_, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Æxlismyndun er þróunarfræðilegt ferli með flóknu samspili æxlisfrumunnar
og þess líkama sem hún vex í. Smitandi æxlisfrumur eru sjaldgæft
fyrirbæri, en þær geta smitast milli einstaklinga. Kynmök, bit og klór
eru helstu smitleiðir hjá þeim tveimur dýrategundum sem helst hafa verið
rannsakaðar m.t.t. smitandi æxlifruma, hundur og Tasmaníudjöfull.
Upphaflega æxlisfruman sem smitar í tilfelli “Canine transmissible
veneral tumours (CTVT)“ hefur þróast með hýslum sínum í nokkur þúsund ár
og dreifst víða, meðan sú sem veldur „Tasmanian devil facial tumor
disease (DFTD)“ er mun yngri og landfræðilega einangruð. Sjúkdómsmyndin
í Tasmaníudjöfli er mun alvarlegri en hjá hundi og veldur oftast dauða.
Einnig eru þekktar smitandi æxlisfrumur í rannsóknarstofumódelum í
hömstrum. Sérstakt náttúruval hefur átt sér stað hjá smitandi
æxlisfrumum og þær hafa m.a. svipgerð sem hjálpar þeim að sleppa frá
ónæmisvörnum hýsilsins. Nýlegar uppgötvanir á smitandi æxlisfrumum í
lindýrum benda til að þetta fyrirbæri gæti verið algengara en áður var
talið. _______________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20180220/dd999f69/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20180220/dd999f69/attachment-0001.jpg>
More information about the Gerlanet
mailing list