[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Kynning á starfsemi ArcticLAS, þjónusturannsóknir á sviði lyfjaþróunar.

Birkir Þór birkirbr at hi.is
Wed Apr 25 13:58:46 GMT 2018


*Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og 
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að 
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar 
til ykkar fólks.*

*
*

*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*

Fyrirlesari:*Bergþóra Eiríksdóttir*, framkvæmdastjóri ArcticLAS

Heiti erindis: *Kynning á starfsemi ArcticLAS, þjónusturannsóknir á 
sviði lyfjaþróunar.**
*
Erindið verður haldið _fimmtudaginn 26. apríl kl. 12:20_, í bókasafni 
Tilraunastöðvarinnar.

ArcticLAS hefur verið starfandi í tæp 10 ár og á þeim tíma þjónustað 
ýmis innlend nýsköpunarfyrirtæki í líftæknigeiranum, auk erlendra 
lyfjafyrirtækja. Nýverið var gerður samstarfssamningur milli ArcticLAS, 
Lífvísindaseturs Háskóla Íslands, Keldna og Vísindagarða. Erindið er 
kynning á samstarfinu, aðstöðu ArcticLAS og helstu verkefnum sem hafa 
verið á döfinni hjá fyrirtækinu.

_______________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20180425/a86bba6c/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20180425/a86bba6c/attachment-0001.jpg>


More information about the Gerlanet mailing list