[ÖRFÍ]Ný Fésbókarsíða: Neytendavakt Matvælastofnunar

Hjalti Andrason hjalti.andrason at mast.is
Wed May 31 14:58:10 GMT 2017


Matvælastofnun vekur athygli neytenda á nýrri Fésbókarsíðu<https://www.facebook.com/neytendavakt/> undir yfirskriftinni Neytendavakt Matvælastofnunar. Tilgangur síðunnar er að miðla hagnýtum upplýsingum um öryggi matvæla, hættur og innkallanir, meðferð matvæla, vörusvik, merkingar og rétt neytenda til upplýsinga. Á síðunni geta neytendur einnig lagt sitt af mörkum í þágu matvælaöryggis með því að tilkynna um vanmerkt eða varasöm matvæli á markaði til Matvælastofnunar í gegnum ábendingakerfi stofnunarinnar<http://mast.is/default.aspx?pageid=b872d90c-78f0-4fab-a4db-a4593e3845c0>.

Með því að líka við síðuna gefst neytendum kostur á að fá fyrrgreindar upplýsingar á skjótan og skilvirkan hátt í gegnum Fésbók með það að markmiði:


  *   að gera neytendum kleift að forðast neyslu á varasömum matvælum á markaði.
  *   að leiðbeina neytendum þannig að þeir geti sjálfir tryggt öryggi matvæla sem þeir neyta eftir fremsta megni.
  *   að gera neytendum kleift að taka upplýsta ákvörðun um þann mat sem þeir neyta.
  *   að taka við ábendingum frá neytendum um vanmerkt eða varasöm matvæli á markaði og svara spurningum þeirra.

Við viljum fá allar ábendingar inn í gegnum ábendingakerfi stofnunarinnar. Það er gert til að tryggja eftirfylgni og sér gæðastjóri til þess að öllum ábendingum sé lokið. Það er einnig gert til að halda yfirlit yfir ábendingar, fyrirspurnir og kvartanir til Matvælastofnunar. Fjöldi ábendinga, fyrirspurna og kvartana er tekinn saman og birtur í ársskýrslum Matvælastofnunar, ásamt efni þeirra.

https://www.facebook.com/neytendavakt/

Með kveðju,
Hjalti Andrason

Fræðslustjóri / Head of Information and Communication
Rekstrarsvið / Office of Administration
_____________________________________________________
Matvælastofnun / Icelandic Food And Veterinary Authority
Austurvegur 64 - 800 Selfoss - Iceland
Sími/tel: (+354) 530 4800 - Fax : (+354) 530 4801 - www.mast.is
_____________________________________________________

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20170531/075f1f45/attachment.html>


More information about the Gerlanet mailing list