[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Náttúrulegt landsbyggðamál? Landfræðilegur munur á lífsgæðum melrakka.

Birkir Þór birkirbr at hi.is
Mon Jan 30 10:31:17 GMT 2017



Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og 
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að 
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar 
til ykkar fólks.

*
*

*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*

Fyrirlesari:*Ester Rut Unnsteinsdóttir, *spendýravistfræðingur á 
Náttúrufræðistofnun Íslands.

Heiti erindis:***Náttúrulegt landsbyggðamál? Landfræðilegur munur á 
lífsgæðum melrakka. *

**

Erindið verður haldið _fimmtudaginn 2. febrúar _kl. 12:20, í bókasafni 
Tilraunastöðvarinnar.

Í erindinu verður sagt frá rannsóknum á íslenska refastofninum og 
nokkrum helstu niðurstöðum þeirra. Byggt er að mestu á gögnum sem Páll 
heitinn Hersteinsson aflaði á rúmlega 30 ára tímabili og því sem bæst 
hefur við eftir hans dag ásamt veiðigögnum frá því þau voru skráð 
formlega árið 1958. Því eru til samfelld gögn úr mælingum og veiðitölur 
fyrir ríflega 50 ára tímabil. Við úrvinnslu gagna hefur komið fram 
landfræðilegur munur sem virðist endurspegla tvær megin vistgerðir út 
frá fæðuvistfræði refanna. Annarsvegar eru það dýr sem búa nálægt sjó og 
hafa aðgang að gjöfulli rekafjöru og/eða sjófuglabyggð. Hinsvegar eru 
þau sem búa inn til landsins og neyta fæðu sem er ekki af hafrænum 
uppruna. Til einföldunar má segja að þessar tvær vistgerðir búi á 
sitthvorum landshlutanum: vestur- og austurlandi. Því má segja að um 
náttúrulegt byggðamál sé að ræða enda virðist gæðum landsins misskipt, 
að minnsta kosti fyrir refi.

_______________________________________________________________

Birkir Þór Bragason

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20170130/b8557b33/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20170130/b8557b33/attachment-0001.jpg>


More information about the Gerlanet mailing list