[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Hlutverk Pontin og Reptin í þroskun taugakerfis.
Birkir Þór
birkirbr at hi.is
Mon Apr 24 15:11:54 GMT 2017
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar
til ykkar fólks.
*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*
Fyrirlesari:*Sigríður Rut Franzdóttir*,**lektor við Líf- og
umhverfisvísindadeild HÍ.
**
Heiti erindis:*Hlutverk Pontin og Reptin í þroskun taugakerfis.*
**
Erindið verður haldið _fimmtudaginn 27. apríl kl. 12:20_, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Próteinin Pontin og Reptin (RUVBL1 og 2 í manni) eru meðal grunnþátta
heilkjarna fruma og koma víða við sögu í starfssemi þeirra. Í
fyrirlestrinum verður fjallað um próteinin, þekkt hlutverk þeirra og
rannsóknir okkar á sértækari hlutverkum í taugakerfi. Ávaxtaflugan hefur
lengi verið vinsæl til rannsókna í lífvísindum og skilningur manna á
eiginleikum margra helstu þátta þroskunar og frumulíffræði er þaðan
kominn. Pontin og Reptin hafa meðal annars áhrif á frumuskiptingar og
því getur verið erfitt að rannsaka önnur hlutverk þeirra. Við komust að
hluta til fyrir þetta með því að bæla tjáningu í taugafrumum sem lokið
hafa síðustu skiptingu. Auk þess nýtum við okkur þau erfðafræðilegu tæki
sem þróuð hafa verið til rannsókna í flugunni til að svara spurningum er
varða samskipti Pontin og Reptin við aðra þætti í frumum.
_______________________________________________________________
____________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20170424/ea0e63ad/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20170424/ea0e63ad/attachment-0001.jpg>
More information about the Gerlanet
mailing list