[ÖRFÍ]Málþing á Akureyri: Nýjar reglur um velferð gæludýra

Hjalti Andrason hjalti.andrason at mast.is
Wed Mar 9 14:04:12 GMT 2016


Til dreifingar,

Matvælastofnun og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið halda opið málþing um velferð gæludýra fimmtudaginn 17. mars kl. 13:00 - 16:00 í ráðstefnusal Hótel Kea á Akureyri. Á málþinginu gefst gæludýraeigendum og öðrum áhugasömum kostur á að fræðast um kröfur og helstu nýmæli nýrrar reglugerðar um velferð gæludýra, með gagnvirkum umræðum.

Með útgáfu reglugerðarinnar hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið lokið útfærslu á nýjum dýravelferðarlögum fyrir allar helstu dýrategundir sem löggjöfin nær yfir. Matvælastofnun fer með framkvæmd laganna og reglugerða um velferð dýra og hefur eftirlit með að ákvæðum þeirra sé fylgt.

Dagskrá


·         13:00 - 13:10     Ný reglugerð um velferð gæludýra - Halldór Runólfsson, fundarstjóri

·         13:10 - 13:20     Af hverju nýjar reglur og hver fylgist með? - Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir

·         13:20 - 14:20     Meðferð, umhirða og aðbúnaður gæludýra - Þóra J. Jónasdóttir, dýralæknir gæludýra og dýravelferðar hjá Matvælastofnun

·         14:20 - 14:35    Umræður

·         14:35 - 14:55    Hlé

·         14:55 - 15:35     Tilkynningarskylt dýrahald - hvað er það? - Þóra J. Jónasdóttir, dýralæknir gæludýra og dýravelferðar hjá Matvælastofnun

·         15:35 - 15:55     Umræður

·         15:55 - 16:00     Samantekt og lokaorð - Halldór Runólfsson, fundarstjóri

Skráning

Málþingið er þátttakendum að kostnaðarlausu og eru allir velkomnir! Skráning fer fram á netfanginu mast at mast.is. Vinsamlega takið fram fullt nafn, fyrirtæki/samtök og netfang þátttakanda við skráningu. Skráningarfrestur er til 16. mars nk.

Nánari upplýsingar um nýju reglugerðina um velferð gæludýra er að finna hér:
http://mast.is/frettaflokkar/frett/2016/02/18/Nyjar-reglur-um-velferd-gaeludyra/

Með kveðju,
Hjalti Andrason

Fræðslustjóri / Head of Information and Communication
Rekstrar- og mannauðssvið / Office of Administration
_____________________________________________________
[cid:image001.jpg at 01D138EE.6011DB90]
Matvælastofnun / Icelandic Food And Veterinary Authority
Austurvegur 64 - 800 Selfoss - Iceland
Sími/tel: (+354) 530 4800 - Fax : (+354) 530 4801 - www.mast.is
_____________________________________________________

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20160309/1fc1ebb0/attachment.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: image002.jpg
Type: image/jpeg
Size: 3529 bytes
Desc: image002.jpg
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20160309/1fc1ebb0/attachment.jpg>


More information about the Gerlanet mailing list