[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Rannsóknir á PKD nýrnasýki (Proliferative Kidney Disease) á Íslandi – Útbreiðsla og áhrif á villta stofna laxfiska.

Birkir Þór birkirbr at hi.is
Mon May 4 16:35:58 GMT 2015


_Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og 
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að 
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar 
til ykkar fólks._

*
Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*

Fyrirlesari:*Fjóla Rut Svavarsdóttir, *líffræðingur á Keldum.**

**

Heiti erindis:***Rannsóknir á PKD nýrnasýki (Proliferative Kidney 
Disease) á Íslandi – Útbreiðsla og áhrif á villta stofna laxfiska.*

**

Erindið verður haldið _fimmtudaginn 7. maí kl. 12:20_, í bókasafni 
Tilraunastöðvarinnar.

PKD nýrnarsýki er alvarlegur sjúkdómur sem herjar á laxfiska. Hann 
veldur miklum bólgum í nýrum fiska og getur orsakað mikil afföll. 
Sjúkdóminum veldur smásætt sníkjudýr, /Tetracapsuloides bryosalmonae/ 
(T.b.), sem er háð millihýslum, mosadýrum í ferskvatni, til að ljúka 
lífsferli sínum. Sjúkdómurinn var fyrst greindur á Íslandi árið 2008 en 
fyrir þann tíma er ekkert vitað hérlendis um sjúkdóminn. Þar sem uppkoma 
sjúkdóms af völdum T.b. er beintengd vatnshita, eru líkur á að með 
hlýnandi veðurfari síðust áratugi hafi myndast forsenda fyrir uppkomu 
sjúkdómsins á Íslandi.


Vorið 2013 hófst þriggja ára verkefni um PKD-nýrnasýki í íslensku 
ferskvatni. Seinni tvö árin eru hluti af meistaraverkefni Fjólu Rutar 
Svavarsdóttur. Fjóla Rut hóf meistaranám sitt á Tilraunastöðinni að 
Keldum haustið 2014 og hyggst í fyrirlestrinum segja frá helstu 
niðurstöðum fyrra verkárs.

_______________________________________________________________

Birkir Þór Bragason

Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20150504/a38b0631/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20150504/a38b0631/attachment-0001.jpg>


More information about the Gerlanet mailing list