[ÖRFÍ]Skipulagsnefnd ráðstefnu - Psyringae2019
Oddur Vilhelmsson
oddurv at unak.is
Mon Jun 8 09:00:01 GMT 2015
Kæru kollegar. Ég vona að þessi póstur rati til ykkar sem flestra, en þið megið gjarnan áframsenda á þau sem þið teljið að kunni að hafa áhuga.
Eftir fjögur ár, 2019, verður "10th International Conference on Pseudomonas syringae and Related Plant Pathogens" haldin á Akureyri. Þó enn sé rúmur tími til stefnu, þá langar mig til að spyrja ykkur hvort einhver ykkar séu tilbúin til að koma að skipulagningu ráðstefnunnar, þ.e. að taka sæti í Local Organizing Committee ásamt mér, Rob Jackson og Auði Sigurbjörnsdóttur? Ég á ekki von á að nefndarsetunni fylgi ýkja mikið umstang, en þarna er þó tækifæri fyrir þau ykkar sem vinna að rannsóknum þessu tengt að koma hugðarefnum ykkar að. International Scientific Committee verður undir forsæti Cindy Morris og verður trúlega skipuð mörgum þeim sömu og fyrir síðustu ráðstefnu sem nú er nýlokið. Sjá hér: http://psyringae2015.es/
Líkt og yfirskriftin gefur tilefni til að ætla, þá hefur aðalfókus þessarar ráðstefnuseríu verið á plöntusýkilinn Pseudomonas syringae, en fókusinn hefur þó verið víkkaður allnokkuð og kemur til tals að breyta titlinum. Meðal þess sem rætt var á nýafstaðinni 9ndu ráðstefnu voru:
· Skriðhreyfingar með og án svipu og hlutverk þeirra í virulence
· Type III effectors og hlutverk þeirra í virulence
· Dreifni og vistfræði P. syringae og annarra plöntusýkla í náttúrunni
· Ice nucleation af völdum P. syringae og hlutverk þess í skýjamyndun og regni
· Comparative genomics innan tegunda og á milli þeirra
· Tegundahugtakið og hvað í því felst
· Auk P. syringae var töluvert rætt um Acidovorax, Xanthomonas, Ralstonia, o.fl.
Mér væri ljúft að senda þeim abstract-bókina sem vilja.
Bestu kveðjur,
Oddur
[HAlogo_office_isl_ps]
-------------------------------
[OV1sm]
Oddur Vilhelmsson
Professor of biotechnology
Department of Natural Resource Sciences
University of Akureyri<http://www.unak.is/>
Borgir vid Nordurslod, room 226
IS-600 Akureyri
Iceland
Phones: +354 460 8514 / +354 697 4252
Email: oddurv at unak.is<mailto:oddurv at unak.is>
------------------------------------
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20150608/c764a8d0/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: image001.png
Type: image/png
Size: 3678 bytes
Desc: image001.png
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20150608/c764a8d0/attachment-0001.png>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: image002.jpg
Type: image/jpeg
Size: 4187 bytes
Desc: image002.jpg
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20150608/c764a8d0/attachment-0001.jpg>
More information about the Gerlanet
mailing list