[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Myndun ónæmisminnis í nýburamúsum - bólusetning með próteintengdri pneumókokkafjölsykru og ónæmisglæðum
Birkir Þór
birkirbr at hi.is
Mon Oct 13 08:55:31 GMT 2014
_Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar
til ykkar fólks._
*
*
*
Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*
Fyrirlesari:*Stefanía P. Bjarnarson*, ónæmisfræðingur á ónæmisfræðideild
LSH.**
Heiti erindis:***Myndun ónæmisminnis í nýburamúsum - *bólusetning með
próteintengdri pneumókokkafjölsykru og ónæmisglæðum**
**
Erindið verður haldið _fimmtudaginn 16. október _kl. 12:20, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Rannsóknin fjallar um myndun og viðhald sértækra mótefna og minnisfrumna
gegn pneumókokkafjölsykru í nýburamúsum eftir bólusetningu með
próteintengdu fjölsykrubóluefni (Pnc1-TT), og hvort ónæmisglæðar geti
yfirunnið takmarkanir í ónæmissvörum nýbura. Ónæmisglæðarnir LT-K63 og
CpG-ODN juku marktækt fjölsykrusértæk IgG mótefni, fjölda
mótefnaseytandi frumna í milta og vernd gegn pneumókokkasýkingum. Það
var munur á áhrifum ónæmisglæðanna á kímstöðvarhvarf og þroskun
kímstöðvarfrumna, LT-K63 jók myndun kímstöðva marktækt, vegna aukinnar
þroskunar kímstöðvarfrumna og táningar TNF-?, en CpG1826 ekki. LT-K63
jók einnig viðhald langlífra mótefnaseytandi frumna í beinmerg
nýburamúsa. LT-K63 eykur þannig ónæmisminni eftir bólusetningu með
Pnc1-TT og langtímavernd gegn pneumókokkasýkingum í nýburamúsum.
_______________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20141013/954c8a39/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20141013/954c8a39/attachment-0001.jpg
More information about the Gerlanet
mailing list