[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Tengsl fálka og rjúpu.
Birkir Þór
birkirbr at hi.is
Thu Nov 6 09:57:46 GMT 2014
_
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar
til ykkar fólks._
*
*
*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*
Fyrirlesari:*Ólafur Karl Nielsen**, *vistfræðingur á Náttúrufræðistofnun
Íslands.**
**
Heiti erindis:*Tengsl fálka og rjúpu.*
**
Erindið verður haldið _fimmtudaginn 13. nóvember kl. 12:20_, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Höfundur hefur rannsakað vistfræði fálka og rjúpu frá 1981 á
Norðausturlandi. Á rannsóknasvæðinu eru 83 hefðbundin fálkaóðul. Óðulin
eru heimsótt á hverju ári til að meta ábúð, viðkomu og fæðu fálkanna.
Einnig eru rjúpur taldar. Fæðuval fálkans er sérhæft og aðalfæða hans á
öllum árstímum er rjúpa. Stærð rjúpnastofnsins tekur reglubundnum
breytingum, hann rís og hnígur og um 11 ár eru á milli hámarksára, munur
á mesta og minnsta þéttleika getur verið allt að 25-faldur.
Fálkastofninn sýnir hliðstæðar sveiflur og rjúpnastofninn en með 3-4 ára
hniki, rjúpan rís fyrst og síðan fálkinn á eftir. Reglubundnar
stofnsveiflur hliðstæðar og hjá rjúpunni á Íslandi eru þekktar hjá ýmsum
tegundum grasbíta á norðlægum slóðum. Margir fræðimenn hallast að því að
aflvaka slíkra sveiflna sé að finna innan fæðuvefsins og þá annað hvort
þrepi neðar en grasbíturinn (jurtir) eða þrepi ofar (rándýr, sníkjudýr).
Rætt verður um hvort fálkinn sé mögulegur aflvaki stofnsveiflu rjúpunnar.
_______________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20141106/219d4527/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20141106/219d4527/attachment-0001.jpg
More information about the Gerlanet
mailing list